factograf
IS
Sign in

Wall-E

Key facts

útgáfudagur27. júní 2008
leikstjóriAndrew Stanton
flytjandiThomas Newman
All data from the card 13
Leikstjóri
Andrew StantonJim Reardon
Handritshöfundur
Andrew Stanton
Framleiðandi
Jim Morris
Leikarar
Ben BurttElissa KnightJeff GarlinFred WillardJohn RatzenbergerKathy NajimySigourney Weaver
Kvikmyndagerð
Jeremy LaskyDanielle Feinberg
Klipping
Stephen Schaffer
Tónlist
Thomas Newman
Frumsýning
27. júní 2008
Lengd
97 mínútur
Land
Bandaríkin
Tungumál
Enska
Ráðstöfunarfé
180 milljónir USD
Heildartekjur
533,3 milljónir USD

Wall-E er bandarísk dystópísk teiknimynd frá 2008. Hún var framleidd af Pixar, gefin út af Walt Disney og leikstýrð af Andrew Staton. Sagan fylgir vélmenni sem heitir Wall-E, sem er hannaður til að hreinsa upp yfirgefna jörð sem er full af rusli, í fjarlægri framtíð. Hann verður ástfanginn af öðru vélmenni, sem heitir Eve, sem hefur einnig ákveðið verkefni. Hann fylgir henni út í geim í ævintýri sem breytir örlögum þeirra og mannkyns. Bæði vélmennin hafa frjálsan vilja og tilfinningar sem eru svipaðar mönnum, sem þróast enn frekar eftir því sem líður á myndina.

Eftir að hafa leikstýrt Leitinni að Nemó fannst Stanton að Pixar hefði líkt eftir neðansjávareðlisfræði á trúanlegan hátt og var viljugur að leikstýra mynd sem gerðist að mestu í geimnum. Wall-E hefur takmarkaða viðræðu í byrjun; margar persónana hafa ekki rödd, en tjá sig með líkamstjáningu og vélmennahljóðum.

Wall-E fékk Golden Globe-verðlaunin 2008 fyrir bestu kvikmyndina, Hugo-verðlaunin 2009 fyrir bestu dramamyndina, Nebula-verðlaunin fyrir besta handritið og Saturn-verðlaunin fyrir bestu teiknimyndina. Auk þess fékk myndin Óskarsverðlaun fyrir bestu teiknimyndina og var tilnefnd í fimm öðrum flokkum.

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „WALL-E“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 28. nóvember 2015.

Tenglar

  Þessi kvikmyndagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 90 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article