factograf
IS

Hugo-verðlaunin

Hugo-verðlaunin

Hugo-verðlaunin eru bókmenntaverðlaun sem veitt eru fyrir bestu skáldverk í flokki vísindaskáldskapar eða fantasíu. Verðlaunin eru kosin af þeim sem mæta á Worldcon-ráðstefnuna sem haldin er árlega. Verðlaunin draga nafn sitt af bandaríska ritstjóranum Hugo Gernsback. Þau voru fyrst veitt á 11. Worldcon-ráðstefnunni í Philadelphia árið 1953. Ásamt Nebula-verðlaununum eru Hugo-verðlaunin þekktustu verðlaun fyrir vísindaskáldskap í heiminum.

Upphaflega voru verðlaunin veitt í 7 flokkum, en þeir hafa breyst í gegnum tíðina og eru nú 15 talsins. Þar á meðal eru fjögur verðlaun fyrir bestu skáldsögu í mismunandi lengdum (smásögu, nóvellettu, nóvellu og skáldsögu), bestu ritröð, bestu myndskreytingar o.s.frv. Verðlaunagripurinn er alltaf stílfærð eldflaug, en er annars breytilegur frá ári til árs.

Tilvísanir

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 62 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article