factograf
IS

Mahabarata

Mahabarata

Mahabarata (sanskrít: महाभारत Mahābhāratam;) er annað af stóru hetjuljóðunum tveimur á sanskrít í sögu Forn-Indlands. Hitt nefnist Rāmāyaṇa. Í Mahabarata segir frá átökum tveggja skyldmennahópa í Kurukshetra-stríðinu, Kaurava og Pandava og afkomenda þeirra.

Sagnakvæðið inniheldur líka mikið af heimspekilegum og trúarlegum vangaveltum, eins og hugtakið Puruṣārtha eða „lífsmarkmiðin fjögur“. Helstu sögurnar í kvæðinu eru Bhagavad Gita, sagan um Damajanti, sagan um Sakúntala, sagan um Pururava og Úrvasí, sagan um Savitri og Satjavan, sagan um Katja og Devajani, sagan um Risjasringa og styttri útgáfa af Ramajana. Þessar sögur eru oft þýddar og gefnar út sérstaklega sem sjálfstæð verk.

Hefðbundinn höfundur Mahabarata er kallaður Vyasa, en talið er að megnið af sagnabálknum hafi verið tekið saman frá 3. öld f.o.t. til 3. aldar e.o.t., og að elstu hlutar hans séu ekki eldri en frá 4. öld f.o.t. Textinn komst líklega á endanlegt form á tímum Guptaveldisins á 4. öld.

Mahabarata er lengsta sagnkvæði sem vitað er um og hefur verið nefnt „lengsta kvæði sem samið hefur verið“. Lengstu útgáfur þess innihalda 100.000 slokur eða meira en 200.000 ljóðlínur, auk langra kafla í óbundnu máli. Mahabarata telur um 1,8 milljón orð og er um það bil tíu sinnum lengra en Ilíonskviða og Ódysseifskviða samanlagt, og um fjórum sinnum lengra en Ramajana. Vegna menningarlegs mikilvægis hefur kvæðinu verið líkt við Biblíuna, Kóraninn, verk Hómers og forngrísku leikskáldanna, og jafnvel verk William Shakespeare. Á Indlandi er Mahabarata stundum kallað „fimmta Vedan“.

Tilvísanir

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 146 languages

isAfrikaansAlemannischaragonésअंगिकाالعربيةالدارجةمصرىঅসমীয়াasturianuअवधीazərbaycancaتۆرکجهбашҡортсаBasa BaližemaitėškaBikol Centralбеларуская (тарашкевіца)беларускаябългарскиभोजपुरीবাংলাབོད་ཡིགবিষ্ণুপ্রিয়া মণিপুরীbrezhonegbosanskiBatak MandailingбуряадcatalàнохчийнکوردیčeštinaCymraegdanskDeutschडोटेलीΕλληνικάEnglishEsperantoespañoleestieuskaraفارسیsuomifrançaisFryskGaeilgekriyòl gwiyannengalegoAvañe'ẽगोंयची कोंकणी / Gõychi KonknniBahasa Hulontaloગુજરાતીעבריתहिन्दीFiji HindihrvatskimagyarհայերենԱրեւմտահայերէնBahasa IndonesiaIlokanoIdoitaliano日本語JawaქართულიQaraqalpaqshaқазақшаភាសាខ្មែរಕನ್ನಡYerwa Kanuri한국어کٲشُرkurdîkernowekкыргызчаLatinalombardlietuviųlatviešuMadhurâमगहीमैथिलीBasa Banyumasanолык мариймакедонскиമലയാളംмонголꯃꯤꯇꯩ ꯂꯣꯟमराठीBahasa Melayuမြန်မာဘာသာمازِرونیPlattdüütschनेपालीनेपाल भाषाNederlandsnorsk nynorsknorskoccitanଓଡ଼ିଆਪੰਜਾਬੀपालिpolskiPiemontèisپنجابیپښتوportuguêsromânăрусскийрусиньскыйसंस्कृतम्ᱥᱟᱱᱛᱟᱲᱤسنڌيsrpskohrvatski / српскохрватскиසිංහලSimple Englishslovenčinaslovenščinashqipсрпски / srpskiSundasvenskaKiswahiliதமிழ்ತುಳುతెలుగుไทยTürkmençeTagalogtoki ponaTürkçeтатарча / tatarçaукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаTiếng ViệtWinaray吴语მარგალურიייִדיש文言閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article