factograf
IS

Ladakh

Ladakh

Key facts

íbúafjöldi274.289
flatarmál59.196km²
landIndland
stofndagsetning31. október 2019
staðsett í stjórnsýslueiningunniIndland
opinbert tungumálhindí

Ladakh er hérað sem Indland stýrir sem alríkissvæði. Ladakh er austurhluti umdeilda héraðsins Kasmír þar sem Indland og Pakistan hafa tekist á um yfirráð frá 1947. Ladakh á landamæri að kínverska sjálfstjórnarhéraðinu Tíbet í austri, indverska héraðinu Himachal Pradesh í suðri, indverska alríkishéraðinu Jammú og Kasmír og pakistanska héraðinu Gilgit-Baltistan í vestri, og tengist Xinjiang um Karakoram-skarðið í norðri. Það nær frá Siachen-jökli í Karakoramfjöllum í norðri að Himalajafjöllum í suðri. Austurendi héraðsins er hinar óbyggðu Aksai Chin-sléttur, sem Kína ræður yfir en Indland gerir tilkall til.

Ladakh var gert að sérstöku alríkissvæði árið 2019. Það er stærsta alríkissvæði Indlands.

Read next

In 91 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article