factograf
IS
Sign in

Isabel Allende

Isabel Allende

Key facts

fæðingardagur2. ágúst 1942
fæðingarstaðurLíma
meðlimur stjórnmálaflokksDemókrataflokkurinn
verðlaunPremio Nacional de Literatura

Isabel Angélica Allende Llona (f. 2. ágúst 1942) er chileskur rithöfundur sem sló í gegn á heimsvísu með skáldsögunni Hús andanna frá 1982. Hún er oft kennd við töfraraunsæið en tilheyrir samt kynslóð suðuramerískra rithöfunda sem kom fram eftir uppgangskynslóðina. Bækur hennar byggjast á hennar eigin reynslu, eru skrifaðar út frá sjónarhorni kvenna og flétta saman goðsögum og raunsæi. Aðrar bækur hennar sem komið hafa út á íslensku eru meðal annars Ást og skuggar frá 1985, Eva Luna frá 1987, Eva Luna segir frá frá 1989, Á slóð skepnunnar frá 2002 og Ríki gullna drekans frá 2004.

Allende hefur verið nefnd mest lesni höfundur á spænska tungu. Árið 2004 var hún tekin inn í Bandarísku listaakademíuna og árið 2010 fékk hún bókmenntaverðlaun Chile. Hún hefur búið í Kaliforníu frá 1989 og fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 1993.

Tilvísanir

  Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 76 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article