factograf
IS

Rússneskur stjórnmálaflokkur

Sameinað Rússland

Sameinað Rússland

Key facts

stofndagsetning1. desember 2001
erstjórnmálaflokkur
landRússland
lýst í heimildLentapedia

Sameinað Rússland (kyrillískt letur: Единая Россия; Jedínaja Rossíja) er rússneskur stjórnmálaflokkur. Flokkurinn er sá stærsti í Rússlandi og telur til sín um þrjá fjórðu þingsætanna á rússnesku ríkisdúmunni. Sameinað Rússland hefur haft þingmeirihluta frá árinu 2007.

Saga

Sameinað Rússland var stofnað í desember 2001 með samruna flokkanna Einingar og Föðurlandsins/Alls Rússlands. Flokkurinn styður stefnumál Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, sem er eiginlegur en óformlegur leiðtogi flokksins.

Bestu kosningaúrslit Sameinaðs Rússlands voru í þingkosningum árið 2007, en þá fékk flokkurinn 64,4% atkvæðanna. Fylgi flokkurins dalaði niður í 49,32% árið 2011 en hann var áfram stærsti þingflokkurinn, á undan Kommúnistaflokki Rússlands, sem hlaut 19,19% atkvæða. Í kosningunum 2016 hlaut flokkurinn 54,2% atkvæða en Kommúnistaflokkurinn 13,3%.

Sameinað Rússland hlaut um helming atkvæða í þingkosningum ársins 2021 samkvæmt opinberum talningum en talið er að kosningasvindl hafi verið útbreitt og hart var sótt að fjölmiðlum og stjórnarandstæðingum í aðdraganda þeirra.

Í þingkosningum Rússlands árið 2026 hlaut Sameinað Rússland um 355 af 450 þingsætum á dúmunni með um það bil 57,5% atkvæða, sem var met.

Hugmyndafræði

Sameinað Rússland fylgir engri einsleitri hugmyndafræði en flokkurinn styður fjölbreyttan hóp stjórnmálamanna og embættismanna sem styðja ríkisstjórn Pútíns. Flokkurinn höfðar síður til hugmyndafræðilegra kjósenda og því er gjarnan litið á Sameinað Rússland sem „breiðfylkingu“ eða „valdaflokk“. Árið 2009 lýsti flokkurinn yfir að hugmyndafræði sín væri „rússnesk íhaldsstefna“.

Ásakanir um spillingu

Stjórnarandstaðan hefur ítrekað sakað Sameinað Rússland um að standa fyrir kerfislægri spillingu og hefur gjarnan kallað það „flokk bófa og ræningja“ (rússneska: партия жуликов и воров; uppnefnið er upprunnið hjá aðgerðasinnanum Aleksej Navalnyj). Í október 2011 birti Novaja Gazeta grein sem fjallaði um fólk sem hafði skrifað slagorðið „flokkur bófa og ræningja“ á peningaseðla í mótmælaskyni.

Þann 24. nóvember 2011 sagði ríkisþingmaðurinn Aleksandr Khínshtejn, sem er meðlimur í Sameinuðu Rússlandi, í sjónvarpsumræðum á stöðinni Russia-1:

Sameinað Rússland virkar. Það gerir allt til að bæta lífsskilyrði í landinu okkar. Þeir tala við okkur um „flokk bófa og ræninga.“ Ég skal svara þeim. Það er betra að vera í „flokki bófa og ræningja“ en í „flokki morðingja, nauðgara og ruplara.“

Gengi í kosningum

Forsetakosningar

Kosningar Frambjóðandi Fyrri umferð Seinni umferð Niðurstaða
Atkvæði % Atkvæði %
2004 Flokkurinn studdi Vladímír Pútín 49.565.238 71,31 — Vann
2008 Dmítríj Medvedev 52.530.712 70,28 — Vann
2012 Vladímír Pútín 46.602.075 63,60 — Vann
2018 Flokkurinn studdi Vladímír Pútín 56.430.712 76,69 — Vann
2024 Flokkurinn studdi Vladímír Pútín 76.277.708 88,48 — Vann

Þingkosningar

Kosningar Oddviti Atkvæði % Þingsæti +/– Sæti Stjórnarþátttaka
2003 Borís Gryzlov 22.779.279 37,57
223 / 450
122 1. Meirihluti
2007 44.714.241 64,20
315 / 450
92 1. Meirihluti
2011 Vladímír Pútín 32.379.135 49,32
238 / 450
77 1. Meirihluti
2016 Dmítríj Medvedev 28.527.828 54,20
343 / 450
105 1. Meirihluti
2021 Sergej Shojgú 28.064.258 49,82
324 / 450
19 1. Meirihluti
2026 Sergej Lavrov 30.038.46 57,97
347 / 450
23 1. Meirihluti

Tilvísanir

  Þessi Rússlandsgrein sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 75 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article