Pétur 2. (portúgalska: Dom Pedro II; 2. desember 1825 – 5. desember 1891), kallaður „hinn göfuglyndi“ (portúgalska: O Magnânimo) var annar og síðasti keisari Brasilíu og gegndi þeirri stöðu í 58 ár.
Pétur fæddist í Rio de Janeiro og var sjöunda barn Péturs 1. Brasilíukeisara og Maríu Leópoldínu keisaraynju og því meðlimur brasilískar kvíslar Bragança-ættarinnar. Pétur varð keisari aðeins fimm ára gamall þegar faðir hans sagði skyndilega af sér og hélt til Portúgals árið 1831. Hann átti hann því einmanalega æsku og uppvaxtarár. Pétur var skyldugur til að eyða öllum sínum tíma í nám og undirbúning fyrir valdatíð sína og fékk fá tækifæri til að skemmta sér eða kynnast jafnöldrum sínum. Reynsla Péturs af valdaspilinu innan hirðarinnar og stjórnmáladeilum á þessu tímabili mótuðu persónu hans mjög. Hann varð á fullorðinsárum sínum skyldurækinn maður og trúr þjóð sinni en þó í sífellt auknum mæli gramur gagnvart einvaldsembætti sínu.
Þegar Pétur komst til valda var brasilíska keisaradæmið við það að liðast í sundur en honum tókst sem keisara að gera Brasilíu að efnilegu alþjóðaveldi. Þjóðin skar sig brátt úr hópi nágranna sinna í Rómönsku Ameríku vegna pólitísks stöðugleika, málfrelsis, virðingu við mannréttindi og öflugs efnahags. Stjórnarfyrirkomulag landsins, sem var þing- og stjórnarskrárbundið keisaradæmi, var jafnframt einsdæmi í álfunni. Brasilía bar sigur úr býtum í þremur stríðum (Platastríðinu, Úrúgvæstríðinu og Paragvæstríðinu) og tókst að leiða ýmsar innanlands- og milliríkjadeilur til farsælla lykta. Pétur 2. barðist af hörku fyrir því að þrælahald yrði bannað í Brasilíu þrátt fyrir andóf áhrifamikilla stjórnmála- og efnahahagsvalda. Pétur var sjálfur fræðimaður og gat sér góðan orðstír sem ákafur stuðningsmaður bættrar menntunar, menningarstarfsemi og vísinda. Hann vann sér inn virðingu og aðdáun fræðimanna á borð við Charles Darwin, Victor Hugo og Friedrich Nietzsche og var sjálfur vinur Richards Wagner, Louis Pasteur og Henry Wadsworth Longfellow meðal annarra merkismanna.
Þrátt fyrir að flestir Brasilíumenn hafi ekki sóst eftir breyttu stjórnskipulagi var keisaranum steypt af stóli í valdaráni árið 1889. Valdaránið naut nánast einskis stuðnings annarra en fáeinna herforingja sem vildu koma á lýðveldi undir stjórn einræðisherra. Pétur var þá orðinn lúinn á keisarastólnum og vonlítill um framtíð keisaraembættisins þrátt fyrir víðtækan stuðning almennings. Hann leyfði valdaræningjunum að hafa sína hentisemi og reyndi ekki að endurreisa einveldið. Hann varði síðustu æviárum sínum í útlegð í Evrópu og bjó einn við fremur fátæklegar aðstæður.
Valdatíð Péturs lauk því á óvenjulegan máta. Honum var steypt af stóli á hátindi vinsælda sinna og mörg helstu afrek hans voru fljótt gerð að engu á meðan við tók löng röð veikburða ríkisstjórna og hrina stjórnsýslu- og efnahagskreppna. Mennirnir sem höfðu gert Pétur útlægan fóru fljótt að líta á hann sem fyrirmynd sem brasilíska lýðveldið ætti að tileinka sér. Fáeinum áratugum eftir andlát hans var orðstír hans enn haldið hátt á lofti og mikill fögnuður braust út um land allt þegar líki hans var skilað til Brasilíu. Sagnfræðingar hafa ætíð haft mikið mat á keisaranum og jafnvel talið hann einn merkasta Brasilíumann fyrr og síðar.
