factograf
IS
Sign in

hverfi í Vestur-London á Englandi

Notting Hill

Notting Hill

Key facts

flatarmál1,59km²
landBretland
staðsett í stjórnsýslueiningunniKensington og Chelsea
Fyrir kvikmyndina má sjá Notting Hill (kvikmynd).

Notting Hill er hverfi í Vestur-London í Englandi. Það er nálægt norðvesturhorni Kensington Gardens í borgarhlutanum Kensington og Chelsea. Notting Hill er fjölþjóðlegt hverfi, þekkt fyrir Notting Hill-karnivalið, hátíð sem haldin er þar árlega. Þar er líka Portobello Road-markaðurinn. Kvikmyndin Notting Hill með Juliu Roberts og Hugh Grant gerist í hverfinu.

Í Notting Hill eru mörg viktoríönsk raðhús og þar þykir eftirsóknarvert að búa. Það eru líka margar eðalverslanir og veitingarhús, sérstaklega við Westbourne Grove.

Read next

In 45 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article