factograf
IS

13. forseti Bandaríkjanna (1800-1874)

Millard Fillmore

Millard Fillmore

Key facts

fæðingardagur7. janúar 1800
dánardagur8. mars 1874
starfstjórnmálamaður, lögfræðingur
dánarstaðurBuffalo
makiAbigail Fillmore
embættiForseti Bandaríkjanna
All data from the card 13
Varaforseti
Enginn
Forveri
Zachary Taylor
Eftirmaður
Franklin Pierce
Forseti
Zachary Taylor
Forveri
George M. Dallas
Eftirmaður
William R. King
Fæddur
7. janúar 1800 Moravia, New York, Bandaríkjunum
Látinn
8. mars 1874 (74 ára) Buffalo, New York, Bandaríkjunum
Þjóðerni
Bandarískur
Stjórnmálaflokkur
Viggar
Maki
Abigail Powers (g. 1826; d. 1853)​Caroline McIntosh ​(g. 1858)
Börn
Millard, Mary
Starf
Stjórnmálamaður, lögfræðingur

Millard Fillmore (f. 7. janúar 1800, d. 8. mars 1874) var 13. forseti Bandaríkjanna, milli 1850 og 1853. Sem varaforseti tók Millard við forsetaembættinu af Zachary Taylor við andlát hans og var því ekki kosinn til starfans.

Æska

Millard var fæddist Nathaniel og Phoebe Millard Fillmore í bjálkakofa og var annað barn þeirra af níu. Faðir hans var fátækur bóndi sem bjó skammt frá New York og hann Millard fór í læri hjá vefnaðarmanni. Millard þjónaði í varðsveitinni í New York og lærði þar í New Hope-skólanum. Þá kynntist hann Abigail Powers, þau giftu sig 26. febrúar 1826. Þau eignuðust tvö börn, Millard Powers Fillmore and Mary Abigail Fillmore.

Millard keypti sig út úr læri hjá vefnaðarmanninum og fluttist til Buffalo í New York og hélt áfram námi sínu. Hann fékk lögmannsréttindi árið 1823 lögmannsembætti hjá héraðsdómaranum. Millard gekk til liðs við smáflokk and-frímúrara.

Á þessum tíma árið 1828 voru margir frímúrarar við völd á þingi, og Andrew Jackson þáverandi forseti var frímúrari. Þegar maður að nafni William Morgan sem hafði sagt sig úr frímúrarareglunni og hafði hótað að ljóstra upp ýmiss konar leyndarmálum fannst látinn urðu fjölmargar samsæriskenningar til. Millard var boðið að bjóða sig fram fyrir hönd þeirra sem voru á móti ítökum frímúrara.

Millard komst inn á þing ekki tæplega þrítugur og stuttu síðar sameinaðist flokkur hans við flokk Vigga. Viggaflokkurinn varð til þegar fjölmargir smáflokkar sameinuðust til að berjast gegn einræðistilburðum Jacksons.

Ferill Millards innan Vigga gekk vel og árið 1848 varð hann varaforsetaefni Zachary Taylors og loks árið 1850, varð hann öllum að óvörum forseti Bandaríkjanna.

Mikilvægir atburðir í stjórnartíð Millards Filmore

Á tímum hans opnaði bandaríski sjóherinn fyrir verslun við Japan. Einnig varð Hawaii hluti af Bandaríkjunum en þó ekki fylki strax. Árið 1848 hófst gullæðið og Millard sem var forseti 1850-53 var forseti á þeim tíma sem Kalifornía byggðist og járnbrautir voru reistar til að tengja landið.

Á meðan allt þetta gerðist tók að harðna í átökum milli þeirra sem vildu afnema þrælahald og þeirra sem ekki vildu gera það. Flokkur Vigga reyndi að vera hlutlaus, Demókratar studdu þrælahald og voru þar með komnir með meirihluta atkvæða frá suðurríkjunum. Viggarnir sáu fram á að pólitískur stuðningur við þá fór þverrandi. Þeir gengu því til liðs við annan flokk sem var kallaður hinu skrýtna nafni The Know Nothing Party. Sá flokkur barðist gegn fleiri innflytjendum til Bandaríkjanna.

Millard var ekki forsetaefni Vigga í annað sinn því þeir höfðu verið ósáttir yfir samkomulaginu sem hann átti þátt í að samþykkja árið 1850. Í staðinn var Scott Winfield forsetaefni þeirra.

Á þessum tíma var gerð innrás á Kúbu sem misheppnaðist. Millard var á móti innrásinni en hún var framkvæmd án hans blessunar af suðurríkjamönnum sem vildu með því fjölga fylkjum sem iðkuðu þrælahald með því að stækka sig suður á bóginn.


Forseti Bandaríkjanna
(1850 – 1853)

Fyrirrennari:
Zachary Taylor Eftirmaður:
Franklin Pierce Fyrirrennari:
George M. Dallas Eftirmaður:
William R. King


  Þetta æviágrip sem tengist sögu og stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  Þessi Bandaríkja-tengda grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 130 languages

isAfrikaansአማርኛaragonésÆngliscالعربيةمصرىasturianuazərbaycancaتۆرکجهBasa BaliBikol Centralбеларуская (тарашкевіца)беларускаябългарскиBislamaবাংলাbrezhonegbosanskicatalà閩東語 / Mìng-dĕ̤ng-ngṳ̄CebuanoکوردیcorsučeštinaчӑвашлаCymraegdanskDeutschZazakiދިވެހިބަސްΕλληνικάEnglishEsperantoespañoleestieuskaraفارسیsuomifrançaisGaeilgeGàidhliggalegogungbeGaelgHausa客家語 / Hak-kâ-ngîעבריתहिन्दीFiji HindihrvatskimagyarհայերենԱրեւմտահայերէնinterlinguaBahasa IndonesiaIlokanoIdoitaliano日本語Jawaქართულიқазақша한국어къарачай-малкъарRipoarischkurdîkernowekLatinaLëtzebuergeschLingua Franca NovaLimburgsLigurelombardlietuviųlatviešuMalagasyമലയാളംमराठीBahasa Melayuမြန်မာဘာသာمازِرونیPlattdüütschनेपालीNederlandsnorsk nynorsknorskoccitanਪੰਜਾਬੀKapampanganpolskiPiemontèisپنجابیپښتوportuguêsrumantschromânăрусскийIkinyarwandasicilianuScotssrpskohrvatski / српскохрватскиSimple Englishslovenčinaسرائیکیslovenščinashqipсрпски / srpskisvenskaKiswahiliతెలుగుไทยTürkmençeTagalogTürkçeтатарча / tatarçachiTumbukaئۇيغۇرچە / Uyghurcheукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаTiếng ViệtWinaray吴语მარგალურიייִדישYorùbá閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article