factograf
IS
Sign in

Borg í Téténíu, Rússlandi

Groznyj

Groznyj

Key facts

íbúafjöldi291.687
flatarmál324km²
erstórborg
landRússland
stofndagsetning1818
hæð yfir sjávarmáli130m
All data from the card 9
Land
Rússland
Sjálfstjórnarlýðveldi
Téténía
Stofnun
1818
• Borgarstjóri
Khas-Magomed Kadyrov (SR)
• Borg
324,16 km2
Hæð yfir sjávarmáli
130 m
• Borg
297.137
Tímabelti
UTC+03:00
Vefsíða
www.grozmer.ru

Groznyj (rússneska Грозный; téténska Соьлжа-Гӏала Sölƶa-Ġala) er höfuðstaður fylkisins Téténíu í Rússlandi. Hún stendur við bakka árinnar Sunza. Íbúar voru rúmlega 270 þúsund árið 2010.

Borgin var stofnuð af Rússum sem virki árið 1818 í Stríðinu um Kákasus. Upphaflegir íbúar voru þá kósakkar. Sovétríkin litu á kósakka sem ógn og hvöttu téténa og ingúsjeta til að flytjast til borgarinnar. Þegar þeir gerðu uppreisn gegn stjórninni 1944 voru þeir fluttir burt nauðungarflutningum og margir þeirra drepnir. Borgin varð því aftur fyrst og fremst byggð Rússum. Téténar fengu að snúa aftur árið 1957 sem skapaði hörð átök milli þjóðarbrota í borginni. Eftir fall Sovétríkjanna varð Groznyj höfuðborg Téténska lýðveldisins Itkeríu undir forystu Dzúkar Dúdajevs. Rússar lögðu borgina aftur undir sig í Fyrsta stríðinu um Téténíu 1994-1996.

Aðskilnaðarsinnar náðu borginni aftur árið 1996 og síðan aftur Rússar eftir Annað stríðið um Téténíu 1999-2000. Borgin var að mestu lögð í rúst í loftárásum rússneska hersins þegar setið var um hana í lok seinna Téténíustríðsins. Rússar réðust í miklar breytingar á borginni í kjölfarið.

Tilvísanir

  Þessi Rússlandsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 116 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article