factograf
IS

þýskur efnafræðingur

Fritz Haber

Fritz Haber

Key facts

fæðingardagur9. desember 1868
dánardagur29. janúar 1934
starfefnafræðingur, eðlisfræðingur, verkfræðingur
fæðingarstaðurWrocław
dánarstaðurBasel
makiClara Immerwahr

Fritz Haber (f. 9. desember 1868 í Breslau (Prússlandi), d. 29. janúar 1934 í Basel í Sviss) var þýskur efnafræðingur. Honum voru veitt nóbelsverðlaun í efnafræði 1918 fyrir að hafa þróað, ásamt Carl Bosch, aðferð til að smíða ammoníak úr frumefnum þess. Sú aðferð er nefnd Haberferlið, sem notað er til að framleiða tilbúinn áburð.

Haber tók heimstyrjöldinni fyrri fagnandi, þegar hún braust út og hvatti til og þróaði gashernað, m.a. með klórgasi, sem hann taldi mannúðlegri hernað en hefðbundinn slíkan.

Námsár

Haber nam efnafræði í Berlín og Heidelberg undir leiðsögn Hofmanns og Bunsens. 1891 varði hann doktorsritgerð sína við háskólann í Berlín. Hún fjallaði um afleiður Píperónals (Über einige Derivate des Piperonals).

Read next

In 88 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article