Baekje (eða Paekche; kóreska: 백제; Hanja: 百濟; framburður: Bektje) var kóreskt konungsríki sem var staðsett í suðvesturhluta Kóreu frá 18 f.Kr. til 660 e.Kr. Það var eitt af ríkjunum þremur í sögu Kóreu, ásamt Goguryeo og Silla. Þótt ríkin þrjú hafi verið til samtímis var Baekje fjölmennast þeirra, með um 3.800.000 íbúa (um 760.000 heimili), sem var mun meira en íbúafjöldi Silla (850.000 manns) og á svipuðu bili og Goguryeo (3.500.000 manns).
Ríkið var stofnað af Onjo, þriðja syni stofnanda Goguryeo, Dongmyeong, og Soseono, í Wiryeseong (sem er í suðurhluta Seúl í dag). Líkt og Goguryeo taldi Baekje sig vera arftaka Buyeo, ríkis sem var stofnað í Mansjúríu um svipað leyti og Gojoseon (Forn-Joseon) féll.
Baekje barðist við eða gerði bandalög til skiptis við Goguryeo og Silla eftir því sem ríkin þrjú börðust og stækkuðu yfirráðasvæði sín á skaganum. Þegar vald Baekje stóð sem hæst á 4. öld stýrði ríkið meiri hluta vesturhluta Kóreuskagans, allt norður til Pjongjang, og kann jafnvel að hafa haft yfirráð yfir svæðum í Kína, svo sem í Liaoxi, þótt deilt sé um það. Ríkið varð öflugt sjóveldi á svæðinu með stjórnmála- og viðskiptatengs við bæði Kína og Japan.
Sjókunnátta þess og siglingatækni urðu til þess að ríkið var stundum kallað „Föníka Austur-Asíu“. Þetta voru lykilatriði í því að breiða út búddisma um alla Austur-Asíu og færa menningu meginlandsins yfir til Japans.
Árið 660 var Baekje sigrað af bandalagi Tangveldisins í Kína og Silla, og féll landið að lokum undir yfirráð Sameinaðs Silla.
Sonur Uija, síðasta konungs Baekje, Zenkō, flutti til Japans og stofnaði þar Kudara no Konikishi ættina (kínversk tákn: 百済王氏; Baekje-konungsættarklan). Sú ætt þjónaði síðar keisara Japans.
