factograf
IS

Kóreska

Kóreska (Suðurkóreska: 한국어, hangugeo; Norður-Kóreska: 조선말, chosŏnmal) er fyrsta mál um 80 milljón manns, mest af kóreskum uppruna, sem gerir það að þrettánda mest talaða tungumáli heims. Það er málið sem er notað bæði í Norður- og Suður-Kóreu (þ.e. landfræðilega á Kóreuskaganum). Þessi tvö lönd nota málið aðeins mismunandi, og munurinn er svipaður og á milli meginlands Kína og Taívan, en stjórnmálalegur ágreiningur hefur aukið þann mun. Norður-Kórea hefur sett lög sem gera suður-Kóreska afbrigðið ólöglegt, að viðlagðri dauðarefsing, og menntun og fjölmiðlar í Suður-Kóreu lýsa afbrigðinu úr norðri sem skrítnu og óþægilegu.

Fyrir utan notkun í Kóreu, er málið líka minnihlutamál í t.d. hluta af Kína, þ.e. í Jilin, og hjá hluta fólks á rússnesku eyjunni Sakhalín, sem er norður af Japan. Kóreska hefur 7 málsnið (sjá nánar hér) og málið er líka með virðingarkerfi varðandi formleika í mismunandi aðstæðum, t.d. til að sýna auðmýkt

One basic rule of Korean honorifics is ‘making oneself lower’; the speaker can use honorific forms and also use humble forms to make themselves lower

Ekki hefur tekist að sýna fram á skyldleika kóresku við neitt annað tungumál. Helmingur orðaforðans eru tökuorð úr kínversku.

Engin tilvísunarfornöfn eru til í kóresku og enginn greinir. Nafnorð flokkast ekki í kyn og taka engum breytingum í fleirtölu. Kóreska er ýmist rituð lóðrétt eða lárétt með Hangul sem hefur 40 bókstafi. 21 bókstafur táknar sérhljóð (tíu einhljóð og ellefu tvíhljóð) en nítján bókstafir tákna samhljóð, þar af tákna fimm stafir tvö samhljóð í einu. Grundvallarorðaröð er frumlag — andlag — sögn.

Elstu ritheimildir eru frá um 1100.

Nútíma kóreska er skrifuð frá vinstri til hægri (en líkt og með kínversku getur líka verið skrifuð lóðrétt) með kóreska stafrófinu (sem heitir hangúl, 한글, í Suður-Kóreu en chosŏn'gŭl, 조선글, í Norður-Kóreu). Hangúl (e. hangul) er stundum skrifað hangeul á ensku. Letrið styðst við 24 einfalda stafi (jamo) og 27 flóknari stafi sem búnir er til úr þeim einföldu.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 185 languages

isаԥсшәаAfrikaansAlemannischአማርኛaragonésअंगिकाالعربيةمصرىঅসমীয়াasturianuअवधीazərbaycancaتۆرکجهбашҡортсаBasa BaližemaitėškaBikol Centralбеларуская (тарашкевіца)беларускаябългарскиবাংলাbrezhonegbosanskiбуряадcatalà閩東語 / Mìng-dĕ̤ng-ngṳ̄нохчийнCebuanoᏣᎳᎩکوردیqırımtatarcačeštinakaszëbscziчӑвашлаCymraegdanskDeutschZazakiދިވެހިބަސްΕλληνικάEnglishEsperantoespañoleestieuskaraestremeñuفارسیsuomivõroføroysktfrançaisNordfriiskFryskGaeilgeGagauz贛語galegoAvañe'ẽGaelg客家語 / Hak-kâ-ngîעבריתहिन्दीFiji HindihrvatskihornjoserbsceKreyòl ayisyenmagyarհայերենinterlinguaJaku IbanBahasa IndonesiaIlokanoIdomedžuslovjanskyitalianoᐃᓄᒃᑎᑐᑦ / inuktitut日本語JawaქართულიQaraqalpaqshaKabɩyɛKumoringқазақшаភាសាខ្មែរಕನ್ನಡ한국어къарачай-малкъарکٲشُرkurdîкомиkernowekкыргызчаLatinaлезгиLingua Franca NovaLimburgsລາວlietuviųlatviešuMalagasyолык марийMāoriMinangkabauмакедонскиമലയാളംмонголꯃꯤꯇꯩ ꯂꯣꯟमराठीBahasa Melayuမြန်မာဘာသာэрзяньمازِرونیNapulitanoPlattdüütschनेपालीनेपाल भाषाNederlandsnorsk nynorsknorskoccitanиронਪੰਜਾਬੀKapampanganpolskiPiemontèisپنجابیپښتوportuguêsRuna Simiromânăрусскийрусиньскыйसंस्कृतम्саха тылаᱥᱟᱱᱛᱟᱲᱤsarduScotsسنڌيdavvisámegiellasrpskohrvatski / српскохрватскиසිංහලSimple EnglishslovenčinaslovenščinaGagana SamoachiShonashqipсрпски / srpskiSundasvenskaKiswahiliꠍꠤꠟꠐꠤślůnskiதமிழ்తెలుగుтоҷикӣไทยTürkmençeTagalogtolışitoki ponaTok PisinTürkçeSeediqтатарча / tatarçaтыва дылудмуртئۇيغۇرچە / Uyghurcheукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаvepsän kel’Tiếng ViệtVolapükwalonWinaray吴语მარგალურიייִדישⵜⴰⵎⴰⵣⵉⵖⵜ ⵜⴰⵏⴰⵡⴰⵢⵜ文言閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article