factograf
IS
Sign in

Alin

Alin

Alin eða öln (ft. álnir) er forn mælieining sem miðast við fjarlægðina frá olnboga að fingurgóm. Alin er mismunandi eftir löndum og tímabilum innan hvers lands. Upphafleg lengdareining á Íslandi var lögalin, sem var 19 danskir þumlungar, eða um 48 sentimetrar að lengd. Í byrjun sextándu aldar var tekin upp hamborgaralin, sem var 22 þumlungar eða um 57,8 sentimetrar að lengd, en árið 1776 var dönsk alin löggilt á Íslandi með konunglegri tilskipun. Var hún 24 þumlungar eða 62,8 sentimetrar að lengd.

Alin hefur þannig verið mismunandi og sömuleiðis þær einingar sem byggja á alin. Í hverri alin eru tvö fet og hvert fet er tvö kvartil. Um 1200 var stikumálið leitt í lög. Stika var jöfn tveimur fornum lögálnum eða um 98 sm.

Tenglar

  • Tugamál og tugavog, Ísafold, 54. tölublað (05.08.1899), Bls. 213
  • Um hina fornu íslensku alin; grein í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1910
  • Álnir og kvarðar. – Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, Megintexti (01.01.1968), p. 45-78
  Þessi stærðfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 10 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article