factograf
IS
Sign in

ár

1484

1484
Rannsóknarrétturinn að störfum. Málverk eftir Goya.
Rannsóknarrétturinn að störfum. Málverk eftir Goya.

Árið 1484 (MCDLXXXIV í rómverskum tölum)

Ísland

  • Finnbogi Jónsson varð lögmaður norðan og vestan.
  • Básendar urðu verslunarstaður (hugsanlega þó fyrr).
  • Samkvæmt manntali í ensku borginni Bristol þetta ár voru þá 48 eða 49 Íslendingar þar vinnumenn eða þjónar.

Fædd

  • Jón Arason, Hólabiskup (d. 1550).

Dáin

Erlendis

  • 26. mars - Vilhjálmur Caxton, fyrsti enski prentarinn, prentaði Dæmisögur Esóps.
  • 11. maí - Konungsríkið Ungverjaland vann sigur á Heilaga rómverska ríkinu í orrustunni við Leitzersdorf.
  • 30. maí - Karl 8. var krýndur konungur Frakklands, 13 ára.
  • 6. júlí - Portúgalski sæfarinn Diogo Cão sigldi suður með Afríku og fann mynni Kongófljót. Hann hafði fékk fyrirmæli um að sigla eins langt suður og hann kæmist.
  • 7. ágúst - Lýðveldið Feneyjar og Hertogadæmið Ferrara endurðu átök sín. Feneyjar unnu land norður af Pó á meðan Ferrara endurheimti svæði.
  • 29. ágúst - Innósentíus VIII (Giovanni Battista Cybo) varð páfi.
  • 21. september - Konungdæmin England og Skotland sömdu um 3 ára vopnahlé.
  • 5. desember - Innósentíus VIII páfi gaf rannsóknarréttinum skipun um að elta uppi villutrúarmenn og nornir í Þýskalandi undir leiðsögn dóminíkanamunkanna Heinrichs Kramer og Jacobs Sprenger og lagði þannig í fyrsta sinn galdur og villutrú að jöfnu.

Ódagsett

  • Portúgalskonungur skipaði nefnd stærðfræðinga sem fékk það hlutverk að gera töflur sem auðvelduðu sjómönnum að finna breiddarbauginn.
  • Maximilian 1., hertoginn af Búrgúnd skipaði erlendum kaupmönnum að yfirgefa Brugge. Flestir þeirra fóru til Antwerpen sem óx í kjölfarið sem verslunarstaður.
  • Fyrsta sykumyllan var sett upp á Gran Canaria.

Fædd

  • 1. janúar - Ulrich Zwingli, svissneskur siðbótarmaður (d. 1531).
  • Anna af Foix, drottning Ungverjalands (d. 1506)

Dáin

  • 4. mars - Heilagur Kasimír, prins af Póllandi (f. 1458).
  • 12. ágúst - Sixtus IV páfi (f. 1414).

Read next

In 147 languages

isаԥсшәаAfrikaansAlemannischአማርኛaragonésالعربيةالدارجةمصرىasturianuKotavaazərbaycancaتۆرکجهBoarischбеларуская (тарашкевіца)беларускаябългарскиবাংলাবিষ্ণুপ্রিয়া মণিপুরীbrezhonegbosanskicatalà閩東語 / Mìng-dĕ̤ng-ngṳ̄нохчийнCebuanoکوردیqırımtatarcačeštinaчӑвашлаCymraegdanskDeutschZazakiΕλληνικάemiliàn e rumagnòlEnglishEsperantoespañoleestieuskaraفارسیsuomiføroysktfrançaisNordfriiskfurlanFryskGaeilge贛語kriyòl gwiyannenGàidhliggalegoGaelgעבריתहिन्दीhrvatskiKreyòl ayisyenmagyarհայերենinterlinguaBahasa IndonesiaIlokanoIdoitaliano日本語JawaქართულიQaraqalpaqshaқазақша한국어LatinaLëtzebuergeschLimburgsLigurelombardlietuviųlatviešuमैथिलीBasa Banyumasanмокшеньолык марийMāoriMinangkabauмакедонскиमराठीкырык марыBahasa Melayuမြန်မာဘာသာمازِرونیNapulitanoPlattdüütschनेपाल भाषाNederlandsnorsk nynorsknorskNouormandSesotho sa Leboaoccitanlivvinkarjalaଓଡ଼ିଆиронpolskiپنجابیportuguêsRuna Simiromânăрусскийрусиньскыйसंस्कृतम्саха тылаsicilianuسنڌيdavvisámegiellasrpskohrvatski / српскохрватскиတႆးසිංහලSimple Englishslovenčinaslovenščinaanarâškielâshqipсрпски / srpskiSundasvenskaKiswahiliதமிழ்тоҷикӣไทยTürkmençeTagalogtolışiTürkçeтатарча / tatarçaукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаvènetoTiếng ViệtWest-VlamswalonWinaray吴语მარგალურიייִדיש閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article