Árið 1448 (MCDXLVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- 15. apríl - Marcellus de Niveriis skipaður Skálholtsbiskup. Hann kom þó aldrei til landsins.
- Guðmundur Arason ríki á Reykhólum sigldi til Englands og kom ekki aftur.
Fædd
Dáin
- Desember - Jón Sigurðsson Skálholtsbiskup.
- (líklega) - Guðmundur Arason ríki á Reykhólum.
Erlendis
- 4. mars - Lýðveldið Feneyjar setti fé til höfuðs albanska leiðtoganum Skanderbeg.
- 16. mars - Hundrað ára stríðið: Englendingar gáfust upp fyrir Frökkum við Le Mans.
- 19. mars - Hermenn Konungsríkisins Kastilíu töpuðu orrustu gegn Emíratinu Granada nærri Malaga og misstu um 600 hermenn.
- 20. júní - Karl Knútsson Bonde var kjörinn konungur Svíþjóðar.
- 29. júlí - Sænskir hershöfðingjar réðust inn í Gotland sem var á valdi Danmerkur og Eiríks af Pommern. Árásinni var hrundið.
- 31. júlí - Albanir gáfust upp fyrir Ottómönum við Svetigrad eftir 10 vikna umsátur.
- 3. september - Hússítar náðu yfirráðum yfir Prag.
- 28. september - Kristján 1. var hylltur konungur Danmerkur. Þar með tók Aldinborgarætt við völdum.
- 4. október - Albanía og Lýðveldið Feneyjar sömdu um frið.
- 20. október - Tyrkir unnu sigur á Ungverjum undir forystu Janos Hunyadi í orrustu í Kósovó.
- 28. október - Kristján 1. var hylltur konungur Danmerkur á landsþingi í Viborg.
- Nikulás V páfi byrjaði að flytja bókasafn páfastóls í Vatíkanið. Bókasafn Vatíkansins var þó ekki formlega stofnað fyrr en 1475.
Fædd
Dáin
- 6. janúar - Kristófer af Bæjaralandi, konungur Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar (f. 1416).
- 31. október - Jóhannes 8. Palæologos, keisari austurrómverska ríkisins.
