Árið 1423 (MCDXXIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- 5. október - Guðmundur ríki Arason kvæntist Helgu Þorleifsdóttur, elstu dóttur Vatnsfjarðar-Kristínar.
- Englendingar rændu konungsgarðinn á Bessastöðum. Þeir fóru líka víða um norðanlands með ránum og gripdeildum og brenndu kirkjur í Grímsey og á Húsavík.
- Þorsteinn Ólafsson lét af embætti hirðstjóra og komu Hannes Pálsson og Balthazar van Damme í hans stað.
- Fædd
Dáin
- Jón Tófason, biskup á Hólum.
- Ari Guðmundsson, sýslumaður á Reykhólum.
Erlendis
- 13. apríl - Hundrað ára stríðið: England, Hertogadæmið Búrgúnd og Hertogadæmið Bretanía skrifuðu undir varnarsamning.
- 27. apríl - Bæheimsku styrjaldirnar: Taborítar unnu úrslitasigur á Útrakistum í orrustunni við Hori.
- 18. maí - Þýsku riddararnir enduðu stríð sitt við Pólland og Litáen með samningi.
- 31. júlí - Hundrað ára stríðið: Englendingar unnu sigur á Frökkum í orrustunni við Cravant
- 14. september - Lýðveldið Feneyjar sendi sex skip til Þessalóníku en það hafði keypt borgina af Ottómanveldinu.
- 24. september - Englendingar misstu um 1.400 menn í orrustu við Frakka nálægt Bourgon.
- Fædd
- 3. júlí - Loðvík 11. Frakkakonungur (d. 1483).
- Dáin
