factograf
IS

Taugaveiki

Taugaveiki

Taugaveiki (áður fyrr stundum nefnd tyfussótt, fræðiheiti: febris typhoidea) er óloftbær bakteríu-smitsjúkdómur sem berst einkum með vatni og matvælum, einkum í suðlægum löndum. Nefnd baktería ber heitið salmonella typhi og hún herjar á meltingarveg líkamans.

Veturinn 1906-1907 braust út taugaveikifaraldur í Skuggahverfinu í Reykjavík. Alls veiktust 98 manns og var orsökin rakin til bakteríumengunar í Móakotslind sem var brunnur og eitt helsta vatnsbólið í hverfinu og stóð við horn Vatnsstígs og Lindargötu en báðar þessar götur draga nafn sitt af henni.

Útbreiðsla

17 milljón sýkingartilfelli eru áætluð á hverju ári og mesta útbreiðslan er í Asíu, Afríku, Mið- og Suður-Ameríku. Taugaveiki var nokkuð algengur sjúkdómur á Íslandi á árum áður og voru menn þá stundum settir í einangrun vegna smithættu. Áður fyrr létust um 10 - 20 af hundraði þeirra sem veiktust en í dag er þessi tala komin undir 1 %.

Tenglar

  Þessi heilsugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 96 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article