factograf
IS
Sign in

Talk Talk

Talk Talk var ensk hljómsveit sem stofnuð var árið 1981 af Mark Hollis (söngur, gítar, píanó), Lee Harris (trommur), Paul Webb (bassi) og Simon Brenner (hljómborð). Upphaflega var sveitin synthpopp og nýbylgju-grúppa en fór út í meiri tilraunamennsku, djassskotna tónlist með plötunni Spirit of Eden (1988) og það sem var nefnt síðrokk. Nýja stefnan fór ekki vel í útgáfufyrirtækið EMI og urðu deilur milli þess og sveitarinnar sem enduðu í málaferlum. Sveitin hætti árið 1991.

Breiðskífur

  • The Party's Over (1982)
  • It's My Life (1984)
  • The Colour of Spring (1986)
  • Spirit of Eden (1988)
  • Laughing Stock (1991)

Read next

In 38 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article