factograf
IS
Sign in

Steikarpanna

Steikarpanna

Steikarpanna er flatbotna panna sem notuð er til steikingar. Steikarpönnur eru yfirleitt 200 til 300 mm í þvermáli, með lágum hliðum sem hallast út og löngu handfangi. Flestar steikarpönnur eru úr málmi eins og steypujárni, áli, ryðfríu stáli eða kopar.

Húðaðar pönnur eru með húð úr efni eins og glerungi, tefloni, eða rafhúðun, þannig að matur festist ekki við pönnuna. Slíkar steikarpönnur eru mjög algengar í dag en þegar þær komu fyrst á markaðinn var húðin gæðaminni og yfirleitt eyddist hún með tímanum. Ekki er mælt með því að áhöld úr málmi séu notuð með slíkum pönnum því þau geta rispað húðina.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 91 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article