factograf
IS
Sign in

Rocky IV

Rocky IV

Key facts

útgáfudagur27. nóvember 1985
erkvikmynd
leikstjóriSylvester Stallone
stefnaspennumynd
All data from the card 15
Leikstjóri
Sylvester Stallone
Handritshöfundur
Sylvester Stallone
Framleiðandi
Irwin Winkler, Robert Chartoff
Leikarar
Sylvester StalloneSylvester Stallone, Talia Shire, Burt Young, Carl Weathers, Birgitte Nielsen, Dolph Lundgren.
Kvikmyndagerð
Bill Butler
Klipping
Don Zimmerman, John W. Wheeler
Tónlist
Vince DiCola
Fyrirtæki
Metro-Goldwyn-Mayer, Chartoff-Winkler
Frumsýning
21. nóvemer, 1985. (Los Angeles).
Lengd
90 mínútur.
Land
Bandaríkin
Tungumál
Enska og Rússneska
Aldurstakmark
13 ára
Ráðstöfunarfé
$28 milljónir
Heildartekjur
$300.4 milljónir

Rocky IV er kvikmynd sem var frumsýnd þann 21. nóvember 1985. Sylvester Stallone skrifaði handritið, leikstýrði og lék aðalhlutverkið. Auk hans lék Talia Shire, Adrian Balboa konu Rockys, Burt Young lék Paulie Pennino, mág hans og Dolph Lundgren lék Ivan Drago, höfuðandstæðing Rockys.

Efni

Rocky IV er ein vinsælasta mynd allra tíma. Myndin þykir vera erkitýpan af kaldastríðsmynd. Stallone lét Rocky sem er bandarískur alþýðumaður, vera hjartahreinan og með ríka réttlætiskennd á meðan Rússar eru svikulir og falskir. Ivan Drago hafði áður drepið Apollo Creed, besta vin Rockys í hringnum og ákveður hann að hefna fyrir vin sinn með því að berjast í Moskvu.

Í einu atriði myndarinnar eru sýndar mismunandi aðstæður Ivans og Rockys þegar þeir undirbúa sig fyrir bardagann. Rocky æfir sig úti í snjónum, hann notar það sem hann finnur í náttúrunni til að styrkja sig. Hann dregur trjádrumba og losar snjósleða en notar lítinn hefðbundinn lyftingabúnað. Á meðan er sýnt hvernig Drago notar vísindin til að ná árangri. Hann notar stera, æfingasvæðið er fullt af vísindamönnum sem nota nýjustu tækni til að mæla framgang hans og hvernig hægt er að gera hann enn sterkari. Með þessu myndmáli er verið að sýna hver er sterki aðilinn og hver er veiki aðilinn bæði í bardaganum og í kalda stríðinu.

Read next

In 45 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article