factograf
IS
Sign in

Opeth

Opeth

Key facts

stofndagsetning1990
erhljómsveit
stefnaFramsækinn málmur
Mikael Åkerfeldt á Rock im Park, Þýskalandi, árið 2014
Mikael Åkerfeldt á Rock im Park, Þýskalandi, árið 2014
Peter Lindgren var gítarleikari Opeth frá 1991-2007.
Peter Lindgren var gítarleikari Opeth frá 1991-2007.
2 images

Opeth er sænsk framsækin þungarokkshljómsveit. Sveitin var stofnuð í Stokkhólmi árið 1990 af söngvaranum David Isberg en hann hætti eftir 2 ár og Mikael Åkerfeldt, söngvari og gítarleikari, varð sá sem leiddi hljómsveitina.

Fyrstu plötur sveitarinnar einkennast af áhrifum úr dauðarokki, svartmálmi og framsæknu rokki. Lagasmíðar hljómsveitarinnar hafa oft verið langar og farið yfir 10 mínútur.. Akústískir, léttari kaflar brjóta upp þyngri kafla í sumum lögum. Hljómsveitin spilaði á fáum tónleikum til að styðja við fyrstu fjórar plötur sínar. Það breyttist með plötunni Blackwater Park (2001) þegar sveitin hlaut meiri plötudreifingu og spilaði á fleiri tónleikum. Platan var tekin upp af Steven Wilson (Porcupine Tree) sem Åkerfeldt hafði kynnst eftir að Wilson hafði lofað Still Life, fjórðu plötu Opeth. Hann tók einnig upp tvennuna Deliverence og Damnation sem komu út 2002 en sú síðari var akústísk plata.

Á síðari stykkjum Opeth vék dauðarokkið og áhrif frá framsæknu rokki voru áberandi og og notkun hljómborða. Platan The Last Will and Testament (2024) kom þó aftur með dauðarokkstíl að hluta sem hafði ekki verið síðan á Watershed (2008). TLWAT er þemaplata líkt og Still Life (1999). Sveitin hlaut sænsku Grammy-verðlaunin fyrir plötuna.

Punktar

Núverandi meðlimir

  • Mikael Åkerfeldt – Gítar og söngur (1990-)
  • Martín Méndez – Bassi (1997-)
  • Fredrik Åkesson – Gítar og bakraddir (2007-)
  • Joakim Svalberg – Hljómborð, bakraddir og ásláttarhljóðfæri (2011-)
  • Waltteri Väyrynen – Trommur (2022-)

Fyrrum meðlimir

  • Anders Nordin – Trommur (1989–1997)
  • Johan DeFarfalla – Bassi, bakraddir (1991, 1995–1997)
  • Peter Lindgren – Gítar (1991–2007), bassi (1991)
  • Martin Lopez – Trommur (1997–2006)
  • Per Wiberg – Hljómborð, mellótrón, bakraddir (2005–2011, tónleikameðlimur frá 2003–2005)
  • Martin "Axe" Axenrot – Trommur (2006-2021, tónleikameðlimur 2005-2006)
  • David Isberg - Söngur (1990-1992)

Breiðskífur

  • Orchid (1995)
  • Morningrise (1996)
  • My Arms, Your Hearse (1998)
  • Still Life (1999)
  • Blackwater Park (2001)
  • Deliverance (2002)
  • Damnation (2003)
  • Ghost Reveries (2005)
  • Watershed (2008)
  • Heritage (2011)
  • Pale Communion (2014)
  • Sorceress (2016)
  • In Cauda Venenum (2019)
  • The Last Will And Testament (2024)

Read next

In 50 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article