factograf
IS
Sign in

fylki í Kanada

Ontaríó

Ontaríó

Key facts

íbúafjöldi14.223.942
flatarmál1.076.395km²
landKanada
höfuðborgTorontó
stofndagsetning1. júlí 1867
þjóðhöfðingiKarl 3. Bretakonungur
stjórnarleiðtogiDoug Ford
heimsálfaNorður-Ameríka
staðsett í stjórnsýslueiningunniKanada
tímabeltiAusturtími
All data from the card 24
Land
Kanada
Aðild að ríkjabandalaginu
1. júlí 1867 (Fyrsta, með Nova Scotia, Nýju-Brúnsvík, Québec)
Höfuðborg(og stærsta borg)
Torontó
• Landstjóri
Edith Dumont
• Forsætisráðherra
Doug Ford
Þingmennneðri málstofu
122 af 343 (35,6%)
Þingmennöldungadeildar
24 af 105 (22,9%)
• Samtals
1.076.395 km2
• Land
917.741 km2
• Vatn
158.654 km2 (14,7%)
• Sæti
4. sæti
• Samtals
14.223.942
• Áætlað (2026)
16.136.480
• Sæti
1. sæti
• Þéttleiki
13,21/km2
Mestallt fylkið
UTC−05:00 (EST)
• Sumartími
UTC−04:00 (EDT)
Norðvesturhluti fylkisins
UTC−06:00 (CST)
• Sumartími
UTC−05:00 (CDT)
Skammstöfun póstfangs
ON
Póstfangsforskeyti
KLMNP
ISO 3166 kóði
CA-ON
Opinber tungumál
enska
Vefsíða
www.ontario.ca
Gróft kort af fylkinu.
Gróft kort af fylkinu.
Þróun landamæra Ontaríó og Kanada.
Þróun landamæra Ontaríó og Kanada.
Torontó.
Torontó.
Níagara-fossar
Níagara-fossar
4 images

Ontaríó (enska: Ontario) er fylki í miðausturhluta Kanada. Það er fjölmennasta fylki Kanada og það næststærsta að flatarmáli, á eftir Québec.

Samfélag

Höfuðborg Kanada Ottawa og stærsta borg landsins, Torontó, eru í fylkinu. Aðrar borgir sem nefna má eru: Mississauga, Kitchener, London, Oshawa, Hamilton og Windsor. Íbúar eru rúmar 16,1 milljónir (2026).

Flestir íbúar Ontaríó eru af evrópskum uppruna, til að mynda breskum, írskum og ítölskum. Meira en fjórðungur þeirra tilheyrir ýmsum minnihlutahópum. Enska er helsta tungumálið, en um 5% tala frönsku sem móðurmál og 11% eru tvítyngdir með ensku og frönsku.

Trúar-/lífsskoðunarhópar eru: kaþólskir: 31,4%, ótengdir trúarbrögðum: 23,1%, mótmælendatrúar: 21,1%, aðrir kristnir söfnuðir: 9,7%, múslimar: 4,6%. hindúar: 2,9%, rétttrúnaðarkirkjan: 2,4%, gyðingar: 1,5%, síkar: 1,4% og búddistar: 1,3%.

Söguágrip

Frumbyggjar höfðu verið í árþúsundir á svæðinu áður en franskir og breskir landkönnuðir komu þangað í byrjun 17. aldar. Frakkar áttu í erfiðleikum með landvinninga þar sem Írókesar gerðu bandalag við Breta. Frumbyggjar fengu að kenna á farsóttum Evrópubúa eins og mislingum og bólusótt. Bretar stofnuðu verslunarstaði við Hudson-flóa og urðu áhrifamiklir. Árið 1791 varð hluti af því svæði sem nú er Ontaríó, þ.e. svæðið vestur af Saint Lawrence-fljóti, að hluta til að Efra-Kanada, og sá hluti sem er austan fljótsins að Neðra-Kanada.

Árið 1812, í stríðinu sem kennt er við það ártal, urðu átök milli Breta og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn réðust inn í landið og náðu nokkrum svæðum á sitt vald en voru reknir til baka. Er þeir flýðu lögðu þeir eld að bænum York (sem nú er Torontó). Eftir stríðið var ákveðið að beina athyglinni frekar að innflytjendum frá Bretlandseyjum heldur en Bandaríkjunum.

Árið 1840 urðu Efra- og Neðra-Kanada að fylkinu Kanada (enska: Province of Canada). En árið 1867 var því skipt upp í Ontaríó og Québec eftir tungumálalínum. Með tilkomu kanadísku Kyrrahafsjárnbrautarinnar (Canadian Pacific Railway, lögð 1875–1885) varð efnahagurinn blómlegur og stöðugt fleiri evrópskir innflytjendur komu á svæðið. Virkjun Níagara-fossa færði iðnaðinum aukinn kraft.

Eftir fyrri heimstyrjöld ríkti talsverð andúð á Þjóðverjum í fylkinu og ákveðið var að breyta nafni borgarinnar Berlín í einu héraði þess í Kitchener, eftir breskum flotaforingja. Mikill uppgangur var eftir seinni heimstyrjöld og Torontó varð miðstöð viðskipta í landinu en bílaiðnaður byggðist upp í suðurhluta fylkisins.

Landafræði og náttúrufar

Ontaríó er 1.076.395 ferkílómetrar að stærð. Fylkjamörk þess liggja að Manitóba í vestri og Québec í austri en í suðri eru fimm bandarísk fylki (frá austri til vesturs); Minnesota, Michigan, Ohio, Pennsylvanía og New York. Vötnin miklu: Ontaríó-vatn, Miklavatn, Erie-vatn og Húron-vatn mynda stóran hluta landamæranna. Saint Lawrence-fljót er skipgengt frá vötnunum miklu til Atlantshafs.

Ontaríó er stundum skipt í suður- og norðurhluta. Mikill meirihluti íbúanna býr í suðurhlutanum og ræktarland er mest þar. Norðurhlutinn er mun strjálbýlli, skógi vaxinn og þar er loftslag kaldara. Mestur hluti fylkisins er láglendi en hæðótt er á Kanada-skildinum. Hæsti punktur nær tæpum 700 metrum í norðausturhlutanum. Einnig eru hæðir syðra, í Niagara-hjallanum. Point Pelee er syðsti punktur Kanada, þar er þjóðgarður með sama nafni; Point Pelee-þjóðgarðurinn.

Í fylkinu eru sumur heit og vetur kaldir. Vötnin miklu milda loftslagið í nágrenni sínu í Suður-Ontaríó á veturna þegar þau skila frá sér hitanum sem þau taka til sín á sumrin. Úrkoma er frá 750-1000 mm og dreifist jafnt yfir allt árið. Í Norður-Ontaríó kælir Hudson-flói loftið á sumrin.

Heimild

Fyrirmynd greinarinnar var „Ontario“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. feb. 2017.

Tenglar

  • Opinber vefsíða
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 159 languages

isAfrikaansአማርኛaragonésÆngliscالعربيةܐܪܡܝܐمصرىasturianuAtikamekwअवधीazərbaycancaتۆرکجهBasa BaliBoarischžemaitėškaбеларуская (тарашкевіца)беларускаяBetawiбългарскиभोजपुरीবাংলাbrezhonegbosanskiбуряадcatalà閩東語 / Mìng-dĕ̤ng-ngṳ̄CebuanoکوردیcorsučeštinaCymraegdanskDeutschZazakiΕλληνικάemiliàn e rumagnòlEnglishEsperantoespañoleestieuskaraفارسیsuomivõroføroysktfrançaisNordfriiskfurlanFryskGaeilgeGàidhliggalegoAvañe'ẽ𐌲𐌿𐍄𐌹𐍃𐌺Gaelg客家語 / Hak-kâ-ngîעבריתहिन्दीhrvatskiKreyòl ayisyenmagyarհայերենԱրեւմտահայերէնinterlinguaBahasa IndonesiaInterlingueIdoitaliano日本語ქართულიTaqbaylitқазақша한국어къарачай-малкъарkurdîkernowekLatinaLadinoLëtzebuergeschLingua Franca NovaLimburgsLigurelombardlingálalietuviųlatviešuMalagasyMāoriMinangkabauмакедонскиമലയാളംмонголमराठीBahasa MelayuMaltiမြန်မာဘာသာمازِرونیनेपालीनेपाल भाषाNederlandsnorsk nynorsknorskNovialoccitanиронਪੰਜਾਬੀKapampanganPapiamentuPicardDeitschpolskiPiemontèisپنجابیپښتوportuguêsRuna Simiromânăрусскийрусиньскыйсаха тылаsardusicilianuScotsسنڌيsrpskohrvatski / српскохрватскиසිංහලSimple EnglishslovenčinaslovenščinaSoomaaligashqipсрпски / srpskisvenskaKiswahiliதமிழ்тоҷикӣไทยTagalogtolışilea faka-Tongatoki ponaTürkçeтатарча / tatarçaукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаvènetoTiếng ViệtWest-VlamsVolapükWinaray吴语მარგალურიייִדיש文言閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article