factograf
IS
Sign in

Ojibvar

Ojibvar
Svæði Ojibva um 1800
Svæði Ojibva um 1800

Ojibvar eða Chippewa er þjóðflokkur frumbyggja Norður-Ameríku. Þeir eru nú taldir vera þriðji stærsti þjóðflokkur frumbyggja Kanada og Bandaríkjanna. Í Kanada er talið að þeir séu um 175.000 og í Bandaríkjunum um 130.000 Þeir hafa einnig verið nefndir Ojibweg, Ojibway og Anishinaabe-Ojibwe og tilheyra stærri menningarhópi er nefnist Anishinaabeg (ᐊᓂᔑᓈᐯ) og hafa margt sameiginlegt í hefðum með nágrannaþjóðflokknum Krí. Þeir búa einkum einkum í norður- og vesturhluta Ontario og austurhluta Manitoba og eru náskildir Saulteaux, Nipissing og Oji-Cree. Þeir tala mismunandi anishinaabemowin-mállýskur, sem er eitt af um tuttugu algonkvískum tungumálum. Sögulegt heimaland þeirra, sem þeir nefna Ojibwewaki (ᐅᒋᐺᐗᑭ), náði yfir stórt svæði norðan við Vötnin miklu, annars vegar allt austur að Saint Lawrence-fljóti og hins vegar vestur af um skóglendið allt Sléttunum miklu. Á hefðbundnum búsetusvæðum sínum á skógarsvæðum í austurhluta álfunnar gegndi Ojibva-fólkið lykilhlutverki í loðskinnaverslun.

Orðsifjar

Orðið Ojibva (einnig Ojibwe) mun vera dregið af orðinu Outchibou, en franskir versluarmenn á 17. öld kölluðu fólk sem bjó þar sem Miklavatn, Michiganvatn og Húronvatn mætast. Nafnið sögðu þeir koma frá nágranna frumbyggum. Evrópskir landkönnuðir og kaupmenn notuðu svo nafnið Ojibva yfir frumbyggja norðan við Vötnin miklu. Enskumælandi kaupmenn og innflytjendur umsnéru seinna orðinu í framburði í „Chippewa“.. Það heiti hefur verið algengast í Bandaríkjunum, þótt bæði heitin séu notuð í báðum löndunum. Sjálft kallar fólkið sig Anishinaabe (ᐊᓂᔑᓇᐯ), sem þýðir „hið upprunalega fólk“, og það nafn er notað í auknum mæli í Kanada. Uppruni heitisins „Outchibou - Ojibwa“ er óljós, en ýmsar skýringar hafa verið settar fram, meðal annars: að orðið komu úr ojiibwabwe, sem þýðir „þeir sem svíða þar til skinnið dregst saman,“ og vísar til þess að saumar á mokkasínum voru þurrkaðir yfir eldi til að gera þá vatnshelda; Önnur skýring er að orðið komið úr ozhibii'oweg, „þeir sem skrásetja sýnir sínar,“ og vísar til myndleturs og myndtáknanna sem notuð voru við helgiathafnir.

Menningarbrot

Ojibva wigwam, klætt með birkiberki. Ljósmynd frá 1901
Ojibva wigwam, klætt með birkiberki. Ljósmynd frá 1901
Ojibva-kanó, ljósmynd frá 1910
Ojibva-kanó, ljósmynd frá 1910
Ojibva kona að tappa hlyntré á safa. Ljósmynd frá 1908.
Ojibva kona að tappa hlyntré á safa. Ljósmynd frá 1908.
Teikning frá 1853 af Ojibva-konum við uppskeru á villigrjónum.
Teikning frá 1853 af Ojibva-konum við uppskeru á villigrjónum.
Þetta er afrit af upphaflegri mynd á birkiberki. Ojibva-höfðinginn Kechwaishk ásamt sex öðrum höfðingjum sendu árið 1849 ákæru- og kröfuskrif til forseta Bandaríkjanna vegna svikinna loforða sem gefin voru við samningana 1837 og 1842. Ættflokkar höfðingjana…
Þetta er afrit af upphaflegri mynd á birkiberki. Ojibva-höfðinginn Kechwaishk ásamt sex öðrum höfðingjum sendu árið 1849 ákæru- og kröfuskrif til forseta Bandaríkjanna vegna svikinna loforða sem gefin voru við samningana 1837 og 1842. Ættflokkar höfðingjana…
Myndræn nótnaskrift Ojibva. Afskrift af upprunalegri nótnaskrift á birkifjöl; safnað um 1820 á svæðinu norðan við Miklavatn.
Myndræn nótnaskrift Ojibva. Afskrift af upprunalegri nótnaskrift á birkifjöl; safnað um 1820 á svæðinu norðan við Miklavatn.
Snjóþrúgudansinn, forn hefð Ojibva-fólksins sem dansaður var við fyrstu snjókomu hvers árs. Málverk eftir George Catlin, 1835.
Snjóþrúgudansinn, forn hefð Ojibva-fólksins sem dansaður var við fyrstu snjókomu hvers árs. Málverk eftir George Catlin, 1835.
Myndskreytingu á birkiberki notuð við helgiathafnir í Midewiwin-félaginu, merking hennar er aðeins kunn þeim sem eru innvígðir.
Myndskreytingu á birkiberki notuð við helgiathafnir í Midewiwin-félaginu, merking hennar er aðeins kunn þeim sem eru innvígðir.
Anishinaabemowin mállýskur um 1800.
Anishinaabemowin mállýskur um 1800.
9 images

Áður en samskipti við Evrópubúa hafði áhrif á lifnaðarhætti Ojibva einkenndist menning þeirra mjög af því að þeir voru veiðimenn og safnarar. Þeir höfðu fastari búsetu en aðrir sambærilegir frumbyggjar, bústaðir þeirra voru að mestu kúptar byggingar, nefndir wigwam, þar sem viðargrind er þakin dýrahúðum eða birkiberki. Bústaðurinn gat einnig verið keilulaga, stengur bundnar saman að ofan og einnig þaktar dýrahúðum eða birkiberki. Berkinum var flett af trénu og skorinn í rétt form og saumuð saman með mjóum grenirótum. Allur fatnaður Ojibva-frumbyggjanna var gerður úr skinnum. Hreindýra-, hjartar- og elgskinn voru notuð bæði í karla og kvenfatnað og einnig í skófatnað, mokkasínur. Á veturna bættust við yfirhafnir úr loðfeldi. Ojibvar voru mjög færtir í bátasmíði og bjuggu til kanóa úr birkiberki sem hentuðu einstaklega vel aðstæðunum á vötnum og ám á svæði þeirra að sumarlagi. Kanóarnir voru léttir og auðvelt var að bera þá á milli vatna. En í snjóþungu vetrarlagi þurfti að nota snjóþrúgur og sleða. Nú á dögum býr meirihluti fólksins í nútímalegu húsnæði, en wigwam eru enn notaðir á nokkrum stöðum og við hátíðir og helgiathafnir.

Fyrir utan að vera veiðimenn stunduðu Ojibva-fólkið einnig ræktun ýmissa tegunda af maís og graskera og annar jurta, auk þess að safna manoomin (villihrísgrjón) til matar. Á vorin töppuðu þeir hlynsafa úr trjánum og unnu síðar hlynsíróp úr því. Það krafðist mikillar vinnu að safna og vinna hlynsafa og síróp og ekki síst að safna villigrjónum og þess vegna var það oftast unnið í stærri hópum. Hlynsírópið var algengt í matargerð, en villigrjón voru undirstöðufæða þar sem var auðvelt að safna því. Þúsundir manna komu oft saman þar sem umfangsmiklar veiðar með spjótum og netum á ferskvatnsfiski voru stundaðar við norðanvert Miklavatnið. Þessar samkomur höfðu mikla þýðingu fyrir félagslíf og samskipti, ekki síst milli kynja.

Stjórnun

Ojibva-fólkið skiptist í sjálfstæða hópa sem höfðu að mestu sameiginlega menningu og hefðir. Hver hópur hafði sinn eigin höfðingja og veiðisvæði og og dvöldust í minni fjölskylduhópum á veturna en mynduðu stærri hópa síðla vors eða snemma sumars. Sögulega var ættflokkurinn einn mikilvægasti grunnur samfélagsins sem að mörgu leiti réði stöðu einstaklingsins. Ættflokkarnir aðgreindust með táknum sem kallast tótem og eru til dæmis kennd við dýr og tengjast við goðsögulegan uppruna ættflokksins. Orðið tótem sem er notað í fjölmörgum tungumálum kemur úr máli Ojibva-fólksins, doodem. Þeir sem voru taldir innan hvers ættflokks voru álitin fjölskyldumeðlimir og hjónabönd innan ættflokksins voru þess vegna bönnuð. Ojibva-fólkið skiptist í yfir 20 ættflokka og totemdýr, þar á meðal trana, örn, björn, elgur, mörður, gaupa, úlfur, himbrimi, grani, gæs, rjúpa og hrafn. Mismunandi ættflokkar þóttu fara best með ólíka þætti í samfélaginu; til dæmis komu höfðingjar oft úr ættflokkum himbrimans eða trönunnar, en stríðsmenn komu jafnan úr ættflokkum bjarnarins, marðarins, gaupunnar og úlfsins.

Börn teldust til ættflokks í karllegg, það er að þau fæddust inn í ættflokk föðursins. Þetta gerði að börn Ojibva-kvenna og Evrópskra feðra voru utan ættflokkakerfisins og þar með utanveltu. Þessi börn sem voru fjölmörg mynduðu síðar kanadíska þjóðflokkinn Métis.

Ojibva þjóðflokkurinn hafði enga sameiginlega höfðingja, hins vegar voru höfðingar innan hvers hóps. Hefðbundin forysta þjóðflokksins byggðist samstöðu fremur en einræðislegri stjórn, þar sem höfðingjar (sem eru nefndir ogimaag) voru fremur talsmenn vilja fólksins en stjórnendur. Vegsemd og virðing og val til forystu byggði mjög á gjafmildi. Grundvöllur menningarinnar og samfélagsins byggðust á samspili, þar sem skipti á gjöfum gegndu mjög mikilvægu félagslegu hlutverki. Gagnkvæmt samband og skuldbinding um gagnkvæma aðstoð var innsiglað með gjafaskiptum. Þar sem að höfðingjar ættflokkana voru leiðtogar en ekki stjórnendur þurftu þeir að ráðfærðu sig við samfélagið þegar stærri ákvarðanir voru teknar. Það var heldur ekkert miðstýrt vald höfðingja yfir þjóðflokknum. Þessi valddreifing þótti yfirvöldum Bandaríkjanna, Breta og síðar Kanada afar ruglingsleg; þau vildu gera samninga við „höfðingja“ eða „konunga“ sem gætu stýrt og haft vald yfir heilum þjóðflokkum – fyrirkomulag sem var einfaldlega ekki til í menningu Ojibva.

Hlutverk ættflokkahöfðingjanna breyttist talsvert þegar verslun með loðskinn varð mikilvægur þáttur í lífsafkomunni, bæði að gera samninga viðkaupmenn og einnig við samstarf við aðra hópa um veiðisvæði.

Trú og heimsmynd

Hefðbundin trúarhefð og heimsmynd Ojibva-fólksins býr hvorki yfir formlegri forystu né skipulegum trúarstofnunum en einkennist frekar af miklum fjölbreytileika. Helgisiðir skiptu Ojibva-fólkið miklu máli þar sem andar leiddu það í gegnum lífið. Plötur úr birkiberki voru skrifaðar með myndleturstáknum til að miðla þekkingu og höfðu mikilvægt hlutverk við helgiathafnir.

Kjarninn í andlegu lífi Ojibva var náttúrutrú, öll dýr, tré og steinar höfðu anda eða krafta sem þurfti að sinna. Mikilvægur þáttur í veröldinni eru máttugar andaverur sem eru kallaðar manitouk. Þær birtast í ýmsum myndum og eiga hver um sig misjöfn samskipti við menn. Farsællt líf byggir á því að hafa öðlast stuðning máttugra manitouk-anda. Með því að gangast undir svokallaðar sýnileitir leita einstaklingar í þjóðflokknum oeftir vitjunum og mynda þannig tengsl við tiltekinn manitou sem verður verndarvættur og leiðbeinandi þeirra. Allt fram á 20. öld gekk nánast hver einasti karlmaður af Ojibva-ættum í gegnum slíka sýnileit þegar hann náði kynþroska. Þeir sem eru taldir búa yfir krafti frá manitou-öndunum, annast lækningar og sjá fyrir hvar veiðidýrin eru og aðrar sýnir.

Midewiwin (ᒥᑌᐧᐃᐧᐃ), sem er þekkt á ensku sem „Grand Medicine Society“ (Hið mikla lækningafélag), hefur gegnt miklu hlutverki við að þróa og varðveita lækningahefð og andlega kunnáttu. Það sér um röð vígslugjörða og lækningaathafna, auk þess sem það miðlar þekkingu á lækningajurtum, siðferðilegu líferni og andlegum kenningum. Samkvæmt sögulegri hefð Ojibva var félagið stofnað af Kitchi Manitou (sem einnig kallast andinn mikli) á tímum neyðar fyrir óralöngu. Elstu rituðu heimildir um Midewiwin, í skrifum evrópskra landkönnuða, kaupmanna og landnema eru frá lokum 17. aldar. Þessir Evrópumenn lýstu Midewiwin sem lokuðu og leynifélagi, sennilega vegna þess að þeir skildu ekki eðli félagsins eða að þeir voru ekki velkomið að taka þátt í athöfnum þess. Sumir sagnfræðingar hafa túlkað þetta sem vísbendingu um að Midewiwin hafi orðið til á þessum tíma sem viðbrögð við þrýstingi frá kristnum trúboðum. Rnnsóknir með kolefni-14 aðferðinni sýna hisvegar fram á að grafhýsi og og aðrir munir sem tengd hafa verið við Midewiwin-félagið séu 800 til 1000 ára gömul.

Bæði kandísk og bandarísk yfirvöld reyndu langt fram á 20. öld að banna eða takmarka starfsemi Midewiwin sem leiddi til hnignunar í starfi, en frá sjöunda áratugi 20. aldar hefur mikil endurvakning átt sér stað, knúin áfram af hreyfingum sem starfa að því að endurvekja frumbyggjamenningu. Í dag hefur starfsemi Midewiwin rorðið aðgengilegri fyrir almenning, meðal annars gegnum nútíma tækni.

Kristnir trúboðar höfðu sig mjög frammi meðal Ojibva-fólksins á 19. öld og stofnuðu kirkjur og skóla víða í byggðum þeirra og síðar á svo kölluðum verndarsvæðum. Ekki má vanmeta áhrif trúboða á andlegt líf Ojibva, enda tóku margir upp kristni – þó ekki væri nema til að forðast frekari ónæði af trúboðum. Meðal annars er sennilegt að skilgreiningin á Kitchi Manitou („hinn mikli andi“) sem æðsti mátturinn í andlegu lífi Ojibva-fólksins, hafi í raun orðið til sem samrunni hefðbundinna trúarviðhorfa og hugmynda kristinna trúboða

Tungumál

Tungumál Ojibva-fólks er í raun nokkrar ólíkar en náskyldar mállýskur af því tungumáli sem það kallar anishinaabemowin (ᐊᓂᔑᓈᐯᒧᐎᓐ), og er fumbyggjamál af ætt algonkvískra tungumála. Líkt og mörg uppruna tungumál Norður-Ameríku er það fjölsamsett (enska: polysynthetic languages), viðskeytamál (enska: agglutinating) sem nýtir viðskeyti í upphafi eða og enda til að sýna form- og merkingarmun og við orðmyndun. Nafnorð skiptast í tvo flokka, eða „kyn“, en byggja ekki á andstæðum karlkyns og kvenkyns heldur milli lifandi og ólifandi. Nafnorð sem tákna lifandi verur flokkast yfirleitt sem lifandi, en þau sem tákna líflausa hluti flokkast sem ólifandi; þetta er þó ekki algild regla þar sem hún byggist á menningarlegum skilningi á því hvort hlutur búi yfir „anda“ eða ekki (almennt gildir að ef hlutur hreyfist, þá býr hann yfir „anda“).

Þótt ojibva-málið hafi að nokkur tökuorð úr ensku, frönsku og krímáli, hefur það tekið lítið af orðum úr öðrum tungumálum, heldur eru búin til orð yfir ný hugtök út frá þeim orðaforða sem fyrir er. Nú er það næst mest talaða tungumál frumbyggja í Kanada (á eftir Krí) og það þriðja stærsta í allri Norður-Ameríku (á eftir Navahóa og Krí).

Ritmál

Það er ekkert staðlað ritkerfi til fyrir allar mállýskur ojibva-málsins. Mismunandi mállýskur hafa aðlagað latneska stafrófið að málinu á ýmsan hátt, oftast út frá enskum eða frönskum framburði og stafsetningarvenjum. Einnig nota allmargir Ojibva í Kanada kanadíska atkvæðatáknrófið.

Sögubrot

Nýlenduyfirráð í Norður-Ameríku um 1755
Nýlenduyfirráð í Norður-Ameríku um 1755
Verndarsvæði (Indian Reservations/Reserves) Ojibva og náskildra þjóðflokka í Norður-Ameríku. Einnig borgir þar sem margir þeirra búa.
Verndarsvæði (Indian Reservations/Reserves) Ojibva og náskildra þjóðflokka í Norður-Ameríku. Einnig borgir þar sem margir þeirra búa.
Ungir þátttakendur í Pow Wow 2007
Ungir þátttakendur í Pow Wow 2007
3 images

Samkvæmt munnlegri söguhefð Ojibva bjuggu forfeður þeirra um aldaraðir umhverfis mynni Saint Lawrence-fljóts á svæðum sem nú tilheyra New Brunswick og suðausturhluta Quebec. Samkvæmt þessum sögum fóru forfeður þeirra að flytjast vesturyfir lengra inn í landið einhvern tímann á tímabilinu frá 6. til 10. aldar. Engar fornleifafundir hafa fundist sem benda til þessa.

Til að skilja samfélög frumbyggja reyndu Evrópumenn að aðskilja hópa og gefa þeim nöfn og það er sennilegt að samskipti við Evrópumenn hafi gert að Ojibvar fóru að telja sig sem hluta af sameiginlegri menningu.

Fyrsta ritaða heimildin þar sem minnst er á Ojibva er að finna í skýrslu jesúíta frá árinu 1640 um trúboð þeirra í Nýja Frakklandi. Vinsamleg samskipti hófust fljótlega við franska kaupmenn og gegnum þau samskipti eignuðust Ojibvar skotvopn og foru að versla með loðskinn í skiptum fyrir evrópskar vörur. Með aðgang að skotvopnum náðu þeir yfirhöndinni gagnvart hefðbundnum óvinum sínum, Lakota- og Meskwaki-fólkinu, sem bjuggu vestan og sunnan við þá.

Loðskinnaverslu við Evrópska kaupmenn hafði djúpstæð áhrif á líf Ojibva-fólksins. Í upphafi stunduðu þeir skiptiverslun á loðskinnum af dýrum sem þeir höfðu veitt fyrir franskar vörur. Frá miðri 17. öld urðu þeir í auknum mæli milliliðir milli evrópskra kaupmanna og frumbyggjasamfélaga fyrir vestan búsetusvæði sín. Þegar franskir loðskinnakaupmenn fóru að færa sig vestur á bóginn og Englendingar stofnuðu Hudson's Bay Company við James- og Hudson-flóa flóru allmargir Ojibva-menn að sækja til nýrra svæða, að fyrstu í verslunar- eða veiðferðir, en síðar með fast búsetu. Það Ojibva-fólk sem fluttu norður og vestur inn á hefðbundin Krí-svæði mynduðu oft blönduð samfélög við þá.

Undir lok 18. aldar réðu Ojibva-menn yfir nær öllu því svæði sem nú er Michigan, norðurhluta Wisconsin og Minnesota í Bandaríkjunum. Þeir höfðu einnig yfirráð yfir norðurströndum Miklavatns og Húronvatns kanadamegin og allt vestur að Turtle-fjöllum í Norður-Dakóta.

Að hluta til vegna langvarandi viðskipta og samvinnu tóku Ojibar þátt í bandalagi við Frakka gegn Bretlandi og nýlendubúum þeirra í stríðinu 1756 to 1763. Eftir ósigurinn árið 1763 neyddist Frakkland til að láta Bretlandi eftir nánast öll nýlendusvæði sín í Norður-Ameríku, bæði landsvæðinn í Kanada og austan Mississippi-fljóts. Hins vegar gengu Ojibvar í lið með Bretum gegn Bandaríkjunum í stríðinu 1812. Þeir vonuðu að sigur Breta mundi stoppa innfluttning bandarískra landnema á yfirráðasvæðum þeirra en svo varð ekki. Eftir stríðið ætlaði ríkisstjórn Bandaríkjanna að neyða allt Ojibva-fólk í Bandaríkjunum að flytja til Minnesota, vestan Mississippi-fljóts. Ojibvar snérust harkalega gegn þessu og til vopnaðra átaka kom.

Með sívaxandi innfluttningi Evrópskra innflytjenda urðu mjög árekstrar og átök um nýtingu auðlinda. Til að reyna að leysa úr þessum árekstrum voru gerðir fjölmargir samningar við Ojibva og aðra frumbyggja, bæði í Bandaríkjunum og í Kanada. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Kanada litu á land sem verðmæti sem hægt væri að kaupa, eiga og selja að vild. Evrópsku innflytjendurnir og yfirvöld í Bandaríkjunum og Kanada töldu að með þessum samningum hefðu Ojibvar selt eða afhent eignarrétt yfir viðkomandi landsvæði. Fljótlega kom í ljós að þessar hugmyndir um eignarétt á landi stanguðust á við hugmyndir Ojibva, eins og hjá öðrum frumbyggjum, um samnýtingu auðlinda. Í hugmynda og menningarheimi þeirra var ekki hægt að eiga land, ekki frekar en andrúmsloftið eða vatnið, það væri sameiginleg auðlind. Þegar samningaviðræðurnar fóru fram gátu Ojibvar ekki ímyndað sér að þeir væru að selja landsvæði eða einkaeignarrétt til þess, þeir töldu sig vera að opna fyrir sameiginleg not auðlindanna. Í mörgum tilfellum vekja aðstæðurnar í kringum þessa samninga enn efasemdir um lögmæti þeirra. Um þetta hafa staðið miklar deilur og réttarhöld langt fram á 20. öld.

Meðlimir í Ojibva-þjóðflokknum voru smám saman hraktir frá hefðbundnum heimkynnum sínum við Vötnin miklu með þessum samningum, en sérlega vegna ákvaðanna stjórnvalda um brottflutning. Á 19. öld, sérstaklega eftir 1854 bæði í Bandaríkjunum og Kanada, voru sett ýmis alríkislög sem neyddu frumbyggja til að flytjast á sérstök verndarsvæði (sem heitir Indian reservations í Bandaríkjunum en Indian Reserves í Kanada). Aðalástæðan var að innlima land og auðlindir í efnahagskerfi innflytjenda en einnig til aukinnar aðlögunar frumbyggja að samfélagi og menningu evrópska meirihlutans og þar með fráhvarfi frá hefðbundnum atvinnuháttum. Verndarsvæðin voru í fyrstu úthlutuð sem sameign viðkomandi þjóðflokks en frá 9. áratugi 19. aldar var þeim í auknum mæli skipt upp í minni svæði sem voru úthlutuð til einstaklinga og ætlunin var að gera þá að bændum. Á verndarsvæðum Ojibva-fólks var mest af því landi sem þeim var úthlutað grýtt, mýrlent eða þéttvaxið skógi, og veðurfarið setti skorður fyrir því hvað var hægt að rækta á stuttu vaxtarskeiði. Þar sem barrskógarnir á norðurslóðum hentuðu illa fyrir landbúnað misstu margir eða seldu það svæði sem þeim hafði verið úthlutað til timburfyrirtækja í eigu hvítra manna, en með því minnkaði verulega heildarsvæðið sem þjóðflokkurinn hafði yfirráð yfir. Þegar möguleikar á hefðbundnum sjálfsþurftarbúskap skruppu mjög saman, urðu Ojibvar háðir launavinnu. Þar sem sparnaður er ekki mögulegur í sjálfsþurftarbúskap og fjárhæðirnar fyrir landsvæðin voru lágar, fóru laun og aðrar tekjurnar beint í nauðsynjar og nægðu varla fyrir framfærslu. Flestir Ojibvar á verndarsvæðunum bjuggu við sára fátækt, og urðu háðir opinberum stuðningi til að framfleyta sér. Í bæði Bandaríkjunum og Kanada voru sérstakir heimavistarskólar fyrir frumbyggjabörn rekinn frá því snemma á 19.öld og fram á sjöunda áratug 20. aldar með þeim tilgangi að þvinga fram aðlögun frumbyggja að amerísku eða kanadísku samfélagi. Í Bandaríkjunum voru þessir skólar reknir af ríkinu (Indian Boarding Schools) en í Kanada af ýmsum kristnum kirkjum (Indian residential school system). Börn frumbyggja voru tekin frá heimilum sínum og fjölskyldum í þeim tilgangi að þau aðlöguðust ríkjandi menningu að fullu. Mörg þessara barna létust af völdum illrar meðferðar og vanrækslu og sneru aldrei aftur heim. Frumbyggjar í Bandaríkjunum fengu ekki fullan ríkisborgararétt fyrr en 1924 og í Kanada 1947. Fátækt og mikið atvinnuleysi á verndarsvæðunum hefur leitt til þess að margir Ojibva einstaklingar hafa flutt í borgir og aðra þéttbýliskjarna eins og Minneapolis, Milwaukee og Chicago.

Frá 1960 fór afstaða til frumbyggja mjög að breytast í Bandaríkjunum og Kanada og þá einnig réttindabarátta þeirra. Það hefur leitt til að sjálfsmynd, lagaleg staða og vegsemd þessara þjóðflokka hefur vaxið mjög. Meðal Ojibwe-fólks hefur þetta leitt til endurvakningar á menningarhefðum og hátíðum og sérstaklega í sterku átaki við að auka kunnáttu og notkun á tungumáli þjóðarinnar.

Ojibva og Nýja Ísland

Árið 1875 veitti Kanadíska ríkisstjórnin íslenskum landnemum rétt til sjálfstjórnarsvæðis (Reserve) í Interlake-héraði í Manitoba sem var nefnt Nýja Ísland. Þetta landsvæði hafði verið hefðbundið land- og veiðisvæði Krí og Ojíbva-þjóðanna og hafði verið lofað þeim sem verndarsvæði. Koma Íslendinganna skapaði í byrjun spennu og landflótta þeirra frumbyggja sem þegar bjuggu og veiddu á svæðinu.

Þegar Íslenskir innflytjendur fóru að flytja til vesturstrandar Winnepegvatns bjuggu Ojíbvar-menn við syðri helming vatnsins en þeim hafði fækkað mjög vegna sjúkdóma sem Evrópskir innflytjendur til Norður-Ameríku báru með sér. Yfirvöld í Kanada voru þá að þvinga frumbyggja til að flytja til svo nefndra verndarsvæða og samhliða að vinna að innfluttningi hvítra manna inn á hefðbundin svæði frumbyggja.

Á þessum tíma var mikið kappsmál kandískra yfirvalda að vinna að innfluttningi hvítra Evrópskra innflytjenda til þess hluta Kanada, sem frumbyggjar höfðu einkum haft til umráða áður, meðal annars til að tryggja að Bandríkin helguðu sér ekki þessi svæði. Stefna stjórnvalda í Kanada um hverjir væru æskilegir innflytjendur frá Evrópu var sú sama og í Bandaríkjunum; fólk frá Skandinavíu og Norður-Þýskalandi var talið skylt Engilsöxum og hæfa þess vegna köldu loftslagi Kanada og Íslendingar fengu að fljóta með.

Frumbyggjar, bæði Krí og Ojibva, björguðu mörgum íslenskum fjölskyldum frá hungri á fyrstu árum landnámsins með því að kenna þeim hvernig ætti að veiða villibráð og fisk og komast af snjóþungu og köldu veturna í Kanada og eins hina hörðu bólusóttarfaraldra á árunum 1876–1877.

Ítarefni

  • Michael Grasa (2026). Reconstructing a Lost Built Landscape of the Keweenaw Peninsula: Stone Structures, Ojibwe Oral History, and the Fragmented Archaeological Record of Lake Superior. Independent Research Working Paper
  • Dory Nason (2016).My Grandfather's Knocking Sticks: Ojibwe Life and Labor on the Reservation. University of British Columbia.
  • Brenda J. Child (2012). Holding Our World Together: Ojibwe Women and the Survival of the Community. Viking. ISBN 0670023248
  • William W. Warren (1984). History of the Ojibway People. Minnesota Historical Society Press. ISBN: 087351162X
  • Mary Annette Pember (2025). Medicine River: A Story of Survival and the Legacy of Indian Boarding Schools. Pantheon Books. ISBN: 0553387316
  • Ryan Eyford (2016). White Settler Reserve. New Iceland and the Colonization of the Canadian West. University of British Columbia Press. ISBN: 780774831581

Read next

In 49 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article