factograf
IS

70. utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Mike Pompeo

Mike Pompeo

Key facts

fæðingardagur30. desember 1963
starflögfræðingur
vinnuveitandiCentral Intelligence Agency
meðlimur stjórnmálaflokksRepúblikanaflokkurinn
All data from the card 13
Forseti
Donald Trump
Forveri
Rex Tillerson
Eftirmaður
Antony Blinken
Forveri
John Brennan
Eftirmaður
Gina Haspel
Forveri
Todd Tiahrt
Eftirmaður
Ron Estes
Fæddur
30. desember 1963 Orange, Kaliforníu, Bandaríkjunum
Stjórnmálaflokkur
Repúblikanaflokkurinn
Maki
Leslie Libert (skilin)Susan Pompeo
Börn
1
Háskóli
West PointHarvard-háskóli
Starf
Stjórnmálamaður

Michael Richard Pompeo (f. 30. desember 1963) er bandarískur stjórnmálamaður og málafærslumaður sem var utanríkisráðherra Bandaríkjanna frá árinu 2018 til ársins 2021. Hann er fyrrum liðsforingi í Bandaríkjaher og var forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá janúar 2017 til apríl 2018.

Pompeo sat á fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá 2011 til 2017 fyrir 4. kjördæmi Kansas-fylkis. Hann var jafnframt fulltrúi Kansas í landsnefnd Repúblikanaflokksins og í þingnefnd ítalskættaðra Bandaríkjamanna. Innan Repúblikanaflokksins er Pompeo jafnframt meðlimur í Teboðshreyfingunni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti útnefndi Pompeo í embætti utanríkisráðherra í mars árið 2018 eftir að Rex Tillerson var leystur frá störfum. Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti útnefningu Pompeo þann 26. apríl 2018 með 57 atkvæðum gegn 42 og Pompeo tók við embættinu síðar sama dag.

Tilvísanir


Utanríkisráðherra Bandaríkjanna
(26. apríl 2018 – 20. janúar 2021)

Fyrirrennari:
Rex Tillerson Eftirmaður:
Antony Blinken


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum og Bandaríkjunum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 66 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article