Michael Schumacher (f. 3. janúar 1969) er þýskur fyrrum akstursíþróttamaður sem keppti í Formúlu 1 á árunum 1991 til 2006 og 2010 til 2012. Hann hefur sjö sinnum unnið heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 sem er met sem hann deilir með Lewis Hamilton.
Þann 29. desember 2013 hlaut Schumacher alvarlega höfuðáverka í skíðaslysi í Frakklandi og hætti í kjölfarið að birtast opinberlega. Hann dvaldi lengi á frönsku sjúkrahúsi en var síðan fluttur á sérútbúna gjörgæslu á heimili sínu í Genf.
