Mapútó (portúgalska: Maputo) er höfuðborg og stærsta borg Mósambík. Borgin er hafnarborg og byggist efnahagur hennar aðallega í kringum höfnina. Samkvæmt opinberum tölum frá árinu 2017 búa þar 1.088.449 manns, en talið er að þar búi í raun mun fleiri.
Borgin var látin heita eftir herra Maputsu I foringja Tembe ættflokksins.
