Lockerbie er íslensk hljómsveit sem spilar melódískt popp-rokk í bland við kraftmikið post-rokk. Hún var valin ein af sigursveitum í Sumarkeppni Rásar 2 og Stúdíó Sýrlands. Hljómsveitin er fjögurra manna og gaf út sína fyrstu plötu, Ólgusjó 7. júní 2011. Platan fékk 4 af 5 stjörnum í gagnrýni Fréttablaðsins og var valin plata vikunnar á Rás 2. Hljómsveitin er með útgáfusamning við Record Records á Íslandi og Rallye Label í Japan.
Lockerbie
Read next
In 3 languages
Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article