factograf
IS
Sign in

Bandarísk stjórnmálakona og lögfræðingur

Lisa Murkowski

Lisa Murkowski

Key facts

fæðingardagur22. maí 1957
starfstjórnmálamaður, lögfræðingur
fæðingarstaðurKetchikan
embættilögfræðingur
meðlimur stjórnmálaflokksRepúblikanaflokkurinn
All data from the card 7
Forveri
Frank Murkowski
Fædd
22. maí 1957 Ketchikan, Alaska, Bandaríkjunum
Þjóðerni
Bandarísk
Stjórnmálaflokkur
Repúblikanaflokkurinn
Maki
Verne Martell (g. 1987)
Börn
2
Háskóli
Georgetown-háskóliWillamette-háskóli

Lisa Ann Murkowski (f. 22. maí 1957) er bandarísk stjórnmálakona úr Repúblikanaflokknum sem hefur setið á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Alaska frá árinu 2002.

Æviágrip

Lisa Murkowski er dóttir Franks Murkowski, fyrrum öldungadeildarþingmanns fyrir Alaska. Árið 2002 sagði Frank Murkowski upp þingsæti sínu á öldungadeild Bandaríkjaþings þegar hann var kjörinn fylkisstjóri Alaska. Sem fylkisstjóri útnefndi Frank Murkowski dóttur sína, Lisu Murkowski, í þingsætið sem hafði losnað. Ákvörðun hans um að útnefna sína eigin dóttur í þingsætið var mjög umdeild og var víða úthrópuð sem dæmi um frændhygli. Þrátt fyrir að taka við þingsætinu á umdeildan hátt tókst Murkowski að verja sætið á móti frambjóðanda Demókrataflokksins í þingkosningum ársins 2004.

Faðir Murkowski tapaði endurkjöri í fylkisstjórakosningum árið 2006 á móti Söruh Palin og Palin tók afstöðu gegn Lisu Murkowski í forvali Repúblikanaflokksins fyrir kosningar á öldungadeildina árið 2010. Murkowski tapaði í forvalinu á móti frambjóðanda úr Teboðshreyfingunni en bauð sig sjálfstætt fram á þingið og tókst aftur að ná endurkjöri, í þetta sinn án hjálpar Repúblikanaflokksins. Lög Alaska heimila kjósendum að skrifa nafn einhvers annars en þeirra frambjóðenda sem eru á kjörseðlunum og greiða þeim atkvæði. Sigur Murkowski var fyrsta skipti í fimmtíu ár sem frambjóðanda sem ekki var á kjörseðlinum tókst að vinna með þessu móti.

Murkowski er talin heyra til hófsamari vængs Repúblikanaflokksins og hún hefur stundum átt í deilum við íhaldssamari meðlimi í flokknum. Árið 2017 greiddi hún atkvæði gegn lagafrumvarpi Donalds Trump Bandaríkjaforseta um afnám Obamacare-heilbrigðislaganna, sem stuðlaði að því að frumvarpið var fellt þrátt fyrir að Repúblikanar væru þá í meirihluta á öldungadeildinni. Árið 2018 greiddi hún jafnframt atkvæði gegn skipun Bretts Kavanaugh, sem Trump hafði tilnefnt, í sæti við Hæstarétt Bandaríkjanna.

Murkowski var ein af sjö öldungadeildarþingmönnum Repúblikana sem kusu með því að sakfella Trump þegar hann var kærður til embættismissis árið 2021 í kjölfar árásar stuðningsmanna hans á Bandaríkjaþing þann 6. janúar það ár. Fjandskapur þeirra leiddi til þess að Trump lýsti yfir stuðningi við mótframbjóðanda gegn Murkowski innan Repúblikanaflokksins, Kelly Tshibaka, í kosningum á öldungadeildina árið 2022. Murkowski hafði engu að síður betur gegn Tshibaka í kosningunum og hélt þingsæti sínu.

Murkowski hefur oft tjáð sig um málefni Norðurslóða og hefur heimsótt Ísland nokkrum sinnum í tengslum við þau, auk þess sem hún hefur átt í nánu samstarfi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta Íslands. Hún hefur nokkrum sinnum flutt erindi á ráðstefnum Hringborðs Norðurslóða (Arctic Circle), samtaka Ólafs. Á ráðstefnu samtakanna árið 2021 sagðist hún vilja stofna til fríverslunarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og sagðist hafa viðrað þær hugmyndir við Joe Biden forseta. Hún var meðal flutningsmanna frumvarps á öldungadeildinni í október 2023 til að auka efnahags- og viðskiptafrelsi Íslendinga við Bandaríkin.

Viðurkenningar

Murkowski hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 2021 fyrir „framlag til að styrkja og efla tengsl Íslands við Alaska og Bandaríkin“.

Read next

In 43 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article