factograf
IS

Kongsberg

Kongsberg

Key facts

íbúafjöldi29.169
flatarmál793km²
erSveitarfélög Noregs eftir mannfjölda
landNoregur
stofndagsetning1624
staðsett í stjórnsýslueiningunniBuskerud

Kongsberg er sveitarfélag og borg í Buskerud-fylki í Noregi. Íbúafjöldi er um var 27.000 (2016) og flatarmál sveitarfélagsins er 792 km². Kongsberg er syðsta sveitarfélag fylksins og liggur að Þelamörku og Vestfold. Nágrannasveitarfélög þess eru Flesberg, Øvre Eiker, Hof, Skien, Siljan, Lardal, Notodden og Sauherad.

Í gegnum bæinn rennur áin Numedalslågen.

Saga

Kongsberg var stofnað af Kristjáni IV árið 1624, en árið áður hafði fundist silfur á staðnum. Konungur kallaði til þýska námumenn og voru námur grafnar inn í bergið á svæðinu. Mikið silfur var unnið allt fram til ársins 1805, en þá var námunum lokað. Vinna í þeim hófst síðan aftur árið 1816 en lokað að alvöru árið 1957.

Í mannfjöldatalningu árið 1764 var Kongsberg annar stærsti bær Noregs, á eftir Björgvin sem þá var stærsti bærinn. Kongsberg fékk kaupstaðarréttindi árið 1802.

Þekkt fólk frá Kongsberg

  • Morten Harket, tónlistarmaður
  • Stine Brun Kjeldaas, snjóbrettakona
  • Christian Sinding, tónskáld

Menning

Í Kongsberg er einkar gott skíðasvæði og Kongsberg Jazz Festival hefur verin haldin á hverju ári síðan 1964.

Vinabæir

Tengill

  • Opinberg vefsíða Kongsberg
  Þessi landafræðigrein sem tengist Noregi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Read next

In 49 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article