factograf
IS
Sign in

ICAN

ICAN

Key facts

stofndagsetning23. apríl 2007
erAlmenn félagasamtök
landSviss
verðlaunFriðarverðlaun Nóbels
All data from the card 6
Skammstöfun
ICAN
Stofnun
2007
Höfuðstöðvar
Genf, Sviss
Meðlimir
468 aðildarfélög í 101 landi
Framkvæmdastjóri
Beatrice Fihn
Vefsíða
www.icanw.org

ICAN eða International Campaign to Abolish Nuclear Weapons (Alþjóðleg her­ferð til af­náms kjarna­vopna á íslensku) eru alþjóðleg regnhlífarsamtök friðar- og afvopnunarsinna sem stofnuð voru árið 2007 til að beita sér fyrir banni við kjarnorkuvopnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Baráttan skilaði sér með samþykkt sáttmálans um bann við kjarnavopnum sumarið 2017. Fyrir þátt sinn í því máli hlutu samtökin Friðarverðlaun Nóbels sama ár.

Upphafið

Árið 2006 samþykktu Alþjóðasamtök lækna gegn kjarnorkuvá, handhafar friðarverðlaunahafa Nóbels árið 1985, tillögu á þingi sínu í Helsinki, sem haldið er annað hvort ár, þess efnis að alþjóðlegu átaki gegn kjarnorkuvopnum yrði hrundið af stað. Hin nýja hreyfing hlaut heitið ICAN og voru haldir tveir stofnfundir á árinu 2007, annar í Melbourne í Ástralíu, þar sem fyrir var öflugt samfélag kjarnorkuvopnaandstæðinga en hinn í Vínarborg þar sem fram fór fundur aðildarríkja samningsins gegn dreifingu kjarnorkuvopna. Niðurstaða skipuleggjenda ICAN var sú að sá samningur muni ekki duga til að útrýma kjarnorkuvopnum, heldur þyrfti að vinna að banni á vegum Sameinuðu þjóðanna í sama anda og efnavopnasamningurinn og bann við jarðsprengjum.

Read next

In 52 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article