factograf
IS

Frjálslyndi flokkurinn (Ástralía)

Frjálslyndi flokkurinn (Ástralía)

Frjálslyndi flokkurinn (enska: Liberal Party of Australia, skammstafað LP) er helsti mið-hægriflokkur ástralskra stjórnmála. Flokkurinn er annar tveggja stórra stjórnmálaflokka í landinu ásamt Verkamannaflokknum (ALP). Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður árið 1944 sem arftaki Sameinaða Ástralíuflokksins. Flokkurinn hefur unnið flestar þingkosningar af öllum stjórnmálaflokkum í sögu Ástralíu en er nú í stjórnarandstöðu á landsvísu. Flokkurinn er í þó í stjórn í þremur landshlutum; á Norðursvæðinu, í Queensland og á Tasmaníu.

Frjálslyndi flokkurinn er annar tveggja flokka í Bandalaginu ásamt Þjóðarflokknum. Flokkarnir hafa unnið saman bæði í landsstjórn og stjórnarandstöðu að mestu samfleytt síðan Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður. Bandalagið var síðast við völd frá þingkosningum landsins árið 2013 fram að þingkosningunum árið 2022. Á þeim tíma mynduðu Tony Abbott, Malcolm Turnbull og Scott Morrison ríkisstjórnir Bandalagsins. Núverandi leiðtogi flokksins er Angus Taylor. Tveir fyrrum leiðtogar flokksins, Sir Robert Menzies og John Howard, eru þaulsætnustu forsætisráðherrar í sögu Ástralíu.

Innra skipulag flokksins byggir á sambandsstjórnarfyrirkomulagi og því eru starfrækir sjálfstæðir undirflokkar í öllum sex fylkjum Ástralíu og á höfuðborgarsvæðinu. Frjálslyndi sveitaflokkurinn á Norðursvæðinu er einnig tengdur flokknum. Bæði Frjálslyndi sveitaflokkurinn og Frjálslyndi þóðarflokkurinn í Queensland voru stofnaðir með samruna fylkisdeilda Frjálslynda flokksins og Þjóðarflokksins. Frjálslyndi flokkurinn fer nú með stjórn í tveimur fylkjum og einu svæði. Flokkurinn er í stjórnarandstöðu í Nýja-Suður-Wales, Viktoríu, Suður-Ástralíu, Vestur-Ástralíu og á höfuðborgarsvæðinu.

Hugmyndafræði flokksins hefur verið lýst sem frjálslyndri, íhaldssamri, eða sem frjálslyndri íhaldsstefnu, íhaldssamri frjálslyndisstefnu, eða klassískri frjálslyndisstefnu. Frjálslyndi flokkurinn er yfirleitt fylgjandi efnahagslegu frjálslyndi og félagslegri íhaldsstefnu. Sá armur innan flokksins sem er kenndur við „þjóðernishægrið“ hefur jafnframt verið kallaður hægrisinnaður, og hægri-popúlískur.

Gengi í kosningum

Fulltrúadeildarkosningar

Kosningar Leiðtogi Atkvæði % Þingsæti +/– Sæti Stjórnarþátttaka
1946 Robert Menzies 1.241.650 28,58
15 / 74
15 2. Stjórnarandstaða
1949 1.813.794 39,39
55 / 121
40 1. Stjórnarsamstarf
1951 1.854.799 40,62
52 / 121
3 2. Stjórnarsamstarf
1954 1.745.808 38,31
47 / 121
5 2. Stjórnarsamstarf
1955 1.746.485 39,73
57 / 122
10 1. Stjórnarsamstarf
1958 1.859.180 37.23
58 / 122
1 1. Stjórnarsamstarf
1961 1.761.738 33,58
45 / 122
13 2. Stjórnarsamstarf
1963 2.030.823 37,09
52 / 122
7 2. Stjórnarsamstarf
1966 Harold Holt 2.291.964 40,14
61 / 124
9 1. Stjórnarsamstarf
1969 John Gorton 2.125.987 34,77
46 / 125
15 2. Stjórnarsamstarf
1972 William McMahon 2.115.085 32,04
38 / 125
8 2. Stjórnarandstaða
1974 Billy Snedden 2.582.968 34,95
40 / 127
2 2. Stjórnarandstaða
1975 Malcolm Fraser 3.232.159 41,80
68 / 127
28 1. Stjórnarsamstarf
1977 3.017.896 38,09
67 / 124
1 1. Stjórnarsamstarf
1980 3.108.512 37,43
54 / 125
13 1. Stjórnarsamstarf
1983 2.983.986 34,36
33 / 125
21 2. Stjórnarandstaða
1984 Andrew Peacock 2.951.556 34,06
45 / 148
12 2. Stjórnarandstaða
1987 John Howard 3.175.262 34,41
43 / 148
2 2. Stjórnarandstaða
1990 Andrew Peacock 3.468.570 35,04
55 / 148
12 2. Stjórnarandstaða
1993 John Hewson 3.923.786 37,10
49 / 147
6 2. Stjórnarandstaða
1996 John Howard 4.210.689 38,69
75 / 148
26 1. Stjórnarsamstarf
1998 3.764.707 33,89
64 / 148
11 2. Stjórnarsamstarf
2001 4.244.072 37,40
68 / 150
4 1. Stjórnarsamstarf
2004 4.741.458 40,47
74 / 150
5 1. Stjórnarsamstarf
2007 4.546.600 36,60
55 / 150
20 2. Stjórnarandstaða
2010 Tony Abbott 3.777.383 30,46
60 / 150
5 2. Stjórnarandstaða
2013 4.134.865 32,02
74 / 150
14 1. Stjórnarsamstarf
2016 Malcolm Turnbull 3.882.905 28,67
60 / 150
14 2. Stjórnarsamstarf
2019 Scott Morrison 3.989.435 27,97
61 / 151
1 2. Stjórnarsamstarf
2022 3.502.713 23,89
42 / 151
19 2. Stjórnarandstaða
2025 Peter Dutton 2.525.047 20,8
23 / 151
19 2. Stjórnarandstaða

In 51 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article