factograf
IS

breiðskífa The Carters frá 2018

Everything Is Love

Everything Is Love
All data from the card 7
Gefin út
16. júní 2018
Tekin upp
2017-2018
Hljóðver
U Arena í Paris The Church Studios í London Kingslanding West í Los Angeles
Stefna
Hipphopp R&B trapp
Lengd
41:50
Útgefandi
Parkwood Sony Roc Nation
Stjórn
Beyoncé Jay-Z 808-Ray Beat Butch Boi-1da Cool & Dre David Andrew Sitek D'Mile Smittybeatz Derek Dixie El Michels Fred Ball Illmind Jahaan Sweet MeLo-X Mike Dean Nav Nova Wav Pharrell Sevn Thomas

Everything Is Love (oft stílfært í hástöfum) er fyrsta breiðskífa bandaríska tvíeykisins the Carters sem samanstendur af hjónunum Beyoncé Knowles-Carter og Shawn „Jay-Z“ Carter. Platan var gefin út 16. júní 2018 af Parkwood Entertainment, Sony Music Entertainment, S.C Enterprises og Roc Nation. Beyoncé og Jay-Z sáu um upptökustjórn plötunnar ásamt fjölda annarra, þar á meðal Cool & Dre, Boi-1da, og Pharrell Williams. Meðal gestasöngvara fyrir plötuna voru Quavo, Offset (báðir úr hljómsveitinni Migos), Pharrell Williams og Ty Dolla Sign. Tónlistarstefna plötunnar er hipphopp og R&B og hún fjallar um viðfangsefni eins og rómantíska ást, frægð, auð og stolt svartra.

Það var ekki greint frá plötunni opinberlega fyrr en Beyoncé og Jay-Z tilkynntu um útgáfu hennar á sviði á tónleikum þeirra í London á On the Run II Tour tónleikaferðalaginu og síðar í gegnum reikninga þeirra á samfélagsmiðlum. Platan var upphaflega einungis aðgengileg í gegnum tónlistarstreymisveituna Tidal áður en hún var gefin út víðar 18. júní 2018. Fyrstu vikuna fór Everything Is Love beint í annað sætið á bandaríska Billboard 200 vinsældalistanum með 123.000 seldar einingar sem jafngilda plötu. Á 61. Grammy-verðlaunahátíðinni vann platan verðlaun fyrir Best Urban Contemporary Album auk þess að hljóta tilnefningar fyrir Best Music Video fyrir lagið „Apeshit“ og Best R&B Performance fyrir lagið „Summer“.

Upptaka

Áætlanir um sameiginlega plötu hjónanna voru tilkynntar af Jay-Z í viðtali við The New York Times árið 2017 þegar hann sagði að þau notuðu „list næstum eins og tíma í meðferð“ til að skapa nýja tónlist. Hins vegar, þar sem þau unnu einnig að þeirra eigin plötum, 4:44 og Lemonade, og tónlist Beyoncé þróaðist hraðar, var verkefnið tímabundið sett í bið. Orðrómur um samstarfsverkefnið þeirrar fór á kreik í mars 2018 þegar hjónin tilkynntu sameiginlega tónleikaferðalagið sitt On the Run II Tour.

Meirihluti plötunnar var tekinn upp í U Arena í París. Lögin „Friends“, „Black Effect“ og „Salud!“ voru tekin upp í Kingslanding Studios West í Los Angeles og frekari upptökur á „Summer“ og „Nice“ fóru fram í The Church Studios í London. Beyoncé og Jay-Z framleiddu öll lögin sjálf með öðrum upptökustjórum, þar á meðal Pharrell Williams, Cool & Dre, Boi-1da, Jahaan Sweet, David Andrew Sitek, D'Mile, El Michels, Fred Ball, Illmind, MeLo-X, Mike Dean og Nav. Platan var að mestu tekin upp af Stuart White og Gimel „Young Guru“ Keaton.

Listaverk

Eftir útgáfu plötunnar bjó Louvre safnið til skoðunarferð með leiðsögn um listina sem sýnd var í tónlistarmyndbandinu „Apeshit“.
Eftir útgáfu plötunnar bjó Louvre safnið til skoðunarferð með leiðsögn um listina sem sýnd var í tónlistarmyndbandinu „Apeshit“.

Kápa plötunnar er rammi úr tónlistarmyndbandinu fyrir „Apeshit“. Á henni eru tveir af dönsurum Beyoncé, Jasmine Harper og Nicholas „Slick“ Stewart, í Louvre safninu í París þar sem Harper er að gera í hárið á Stewart fyrir framan málverkið Mona Lisa eftir Leonardo da Vinci.

Útgáfa og kynning

Óvænta útgáfa plötunnar var tilkynnt á tónleikum þeirra On the Run II Tour í London.
Óvænta útgáfa plötunnar var tilkynnt á tónleikum þeirra On the Run II Tour í London.

Þann 6. júní 2018 lögðu Beyoncé og Jay-Z af stað í sameiginlega tónleikaferðalag sitt On the Run II Tour sem var framhald af tónleikaferðalaginu þeirra On the Run Tour frá 2014. Í lok annara tónleika þeirra í London Stadium í London þann 16. júní 2018 tilkynnti Beyoncé tónleikagestunum að tvíeykið myndi koma þeim á óvart áður en þau yfirgáfu sviðið. Síðan spilaðist tónlistarmyndbandið fyrir lagið „Apeshit“ á LED skjánum á sviðinu. Eftir frumsýningu myndbandsins birtust orðin „ALBUM OUT NOW“ á skjánum. Everything Is Love var í kjölfarið gefin út eingöngu á Tidal, streymisveitu í eigu Jay-Z, og allir tónleikagestir fengu ókeypis sex mánaða prufuáskrift að veitunni til að geta streymt plötunni. Plötuna var einnig hægt að kaupa í gegnum tónlistarverslun á vef Tidal. Útgáfa plötunnar var tilkynnt um allan heim á samfélagsmiðlum Beyoncé og Jay-Z þar sem flytjendurnir kölluðu sig the Carters. Sama dag var tónlistarmyndbandið fyrir annað lag plötunnar og aðalsmáskífuna, „Apeshit“ gefið út á YouTube rás Beyoncé. Myndbandið var leikstýrt af Ricky Saiz og tekið upp á Louvre listasafninu í París.

Þann 18. júní var platan gefin út á ýmsum öðrum vettvöngum, þar á meðal á iTunes Store, Apple Music, Deezer, Amazon Music, Napster, Google Play Music og Spotify.

Söluárangur

Beyoncé og Jay Z koma fram á á tónleikaferðalaginu.
Beyoncé og Jay Z koma fram á á tónleikaferðalaginu.

Everything Is Love fór beint í annað sætið á bandaríska Billboard 200 vinsældalistanum með 123.000 seldar einingar sem jafngilda plötu (þar af 70.000 eintök sem hrein sala af plötunni) fyrstu vikuna. Platan komst á vinsældalistann eftir minna en sex daga virkni á Tidal, og fjögurra daga virkni á öllum öðrum stafrænum söluaðilum og streymisveitum. Í sinni annari viku fór platan niður í fjórða sæti listans og seldust 59.000 einingar til viðbótar. Í sinni þriðju viku fór platan niður í áttunda sæti listans með 33.000 einingar í viðbót. Í fjórðu vikunni hélt platan áttunda sætinu með 29.000 fleiri einingar. Everything Is Love var 70. vinsælasta plata ársins 2018 á bandaríska Billboard 200 vinsældalistanum. Þann 14. janúar 2019 hlaut platan gull viðurkenningu af Recording Industry Association of America (RIAA) fyrir samanlagða sölu á plötunni og einingum sem jafngilda plötu með yfir 500.000 einingar í Bandaríkjunum.

Lagalisti

Everything Is Love — Stöðluð útgáfa
Nr.TitillLagahöfundur/arLengd
1.„Summer“
  • Beyoncé
  • Shawn Carter
  • Homer Steinweiss
  • James Fauntleroy II
  • Marcello Valenzano
  • Thomas Brenneck
  • Leon Michels
  • Michael Herard
  • Andre Lyon
4:45
2.„Apeshit“
4:24
3.„Boss“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Tyrone Griffin Jr.
  • Dernst Emile II
4:04
4.„Nice“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Denisia Andrews
  • Brittany Coney
3:53
5.„713“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Valenzano
  • Lyon
  • Rayshon Cobbs Jr.
  • Robert Caldwell
  • Lonnie Lynn
  • Bruce Malament
  • Norman Harris
  • James Yancey
  • Andre Young
  • Melvin Bradford
  • Scott Storch
  • Paul Bender
  • Simon Mavin
  • Perrin Moss
  • Naomi Saalfield
3:13
6.„Friends“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Matthew Samuels
  • Jahaan Sweet
  • Andrews
  • Coney
  • Tavoris Hollins Jr.
  • Amir Esmailian
  • Navraj Goraya
  • Rupert Thomas Jr.
5:44
7.„Heard About Us“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Samuels
  • Nija Charles
  • Sweet
  • Anderson Hernandez
  • Ramon Ibanga Jr.
  • Sean Combs
  • James Mtume
  • Jean-Claude Olivier
  • Christopher Wallace
3:10
8.„Black Effect“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Andrews
  • Coney
  • Lyon
  • Cobbs, Jr.
  • Valenzano
  • Alexander Smith
  • Jun Kozuki
5:15
9.„LoveHappy“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Andrews
  • Coney
  • Lynn
  • Charles
  • David Sitek
  • Bill Laswell
  • Thierry Planelle
  • Jean Touitou
  • Eddie Campbell
  • Ernie Johnson
  • Pete James
  • Raphael Saadiq
  • James Poyser
  • Robert Ozuna
  • Glenn Standridge
  • Erica Wright
  • Larry Graham
3:49
Samtals lengd:38:18
Everything Is Love — Útgáfa á beyonce.com
Nr.TitillLagahöfundur/arLengd
1.„LoveHappy“
  • Beyoncé
  • Shawn Carter
  • Denisia Andrews
  • Brittany Coney
  • Lonnie Lynn
  • Melvin Bradford
  • David Sitek
  • Bill Laswell
  • Thierry Planelle
  • Jean Touitou
  • Eddie Campbell
  • Ernie Johnson
  • Pete James
  • Raphael Saadiq
  • James Poyser
  • Robert Ozuna
  • Glenn Standridge
  • Erica Wright
  • Larry Graham
3:49
2.„Apeshit“
4:24
3.„Boss“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Tyrone Griffin Jr.
  • Dernest Emile II
4:04
4.„Nice“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Andrews
  • Coney
3:53
5.„713“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Marcello Valenzano
  • Andre Lyon
  • Rayshon Cobbs Jr.
  • Robert Caldwell
  • Lynn
  • Bruce Malament
  • Norman Harris
  • James Yancey
  • Andre Young
  • Bradford
  • Scott Storch
  • Paul Bender
  • Simon Mavin
  • Perrin Moss
  • Naomi Saalfield
3:13
6.„Friends“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Matthew Samuels
  • Jahaan Sweet
  • Andrews
  • Coney
  • Tavoris Hollins Jr.
  • Amir Esmailian
  • Navraj Goraya
  • Rupert Thomas Jr.
5:44
7.„Heard About Us“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Samuels
  • Nija Charles
  • Sweet
  • Anderson Hernandez
  • Ramon Ibanga Jr.
  • Sean Combs
  • James Mtume
  • Jean-Claude Olivier
  • Christopher Wallace
3:10
8.„The Black Effect“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Andrews
  • Coney
  • Lyon
  • Cobbs, Jr.
  • Valenzano
  • Alexander Smith
  • Jun Kozuki
5:13
9.„Salud!“
  • Beyoncé
  • Carter
  • Valenzano
  • Lyon
  • Eliot Dubock
  • Terius Nash
3:33
Samtals lengd:37:04
Everything Is Love — ChopNotSlop Remix
Nr.TitillLengd
1.„Summer“7:29
2.„Boss“6:59
3.„Black Effect“5:43
4.„Friends“8:23
5.„LoveHappy“5:15
6.„Apeshit“6:05
7.„713“5:50
8.„Salud!“5:27
9.„Nice“5:58
10.„Heard About Us“5:53
Samtals lengd:63:02

Útgáfa

Listi yfir útgáfudagsetningar, svæði, snið, útgefendur og tilvísanir
Svæði Dagsetning Snið Útgefandi Tilv.
Ýmis 16. júní 2018
  • Parkwood
  • Sony
  • S.C
  • Roc Nation
18. júní 2018
  • Streymi
  • stafrænt niðurhal
6. júlí 2018 Geisladiskur
Japan 22. ágúst 2018 Geisladiskur Sony Music Entertainment Japan

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „Everything Is Love“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. júní 2023.

In 16 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article