EuroLeague er evrópsk körfuknattleiksdeild sem samanstendur af 18 liðum og er almennt viðurkennd sem sterkasta atvinnumannadeildin í Evrópu.
Keppnin var kynnt árið 1958 sem FIBA European Champions Cup (Evrópukeppni meistaraliða) en endurnefnd FIBA Euroleague árið 1996. Deildin starfaði undir regnhlíf FIBA þar til deilur á milli FIBA og Union of European Leagues of Basketball (ULEB) enduðu með að sérsamtök tóku deildina yfir rétt eftir aldamótin.
Íþróttafélag Reykjavíkur (ÍR) varð árið 1964 fyrsta íslenska liðið til að taka þátt í keppninni og jafnframt fyrsta íslenska liðið til að taka þátt í Evrópukeppni.
Ytri tenglar
- EuroLeague Geymt 29. janúar 2025 í Wayback Machine
- EuroLeague TV Geymt 29. janúar 2025 í Wayback Machine
- Euroleague Basketball Geymt 30. janúar 2025 í Wayback Machine
