factograf
IS
Sign in

Easy A

Easy A

Key facts

útgáfudagur11. september 2010
erkvikmynd
leikstjóriWill Gluck
All data from the card 13
Leikstjóri
Will Gluck
Handritshöfundur
Bert V. Royal
Framleiðandi
Will Gluck Zane Devine
Leikarar
Emma Stone Penn Badgley Amanda Bynes Thomas Haden Church Patricia Clarkson Cam Gigandet Lisa Kudrow Malcolm McDowell Aly Michalka Stanley Tucci
Kvikmyndagerð
Michael Grady
Klipping
Susan Littenberg
Tónlist
Brad Segal
Frumsýning
17. september 2010 12. nóvember 2010
Lengd
92 mín.
Land
Bandaríkin
Tungumál
Enska
Aldurstakmark
12 ára
Ráðstöfunarfé
$8 milljónir

Easy A er bandarísk unglingamynd frá árinu 2010 sem Will Gluck leikstýrði og framleiddi. Emma Stone, Penn Badgley, Amanda Bynes og Lisa Kudrow fara með aðalhlutverk í myndinni sem er að hluta til byggð á skáldsögunni The Scarlett Letter eftir Nathaniel Hawthorne. Myndin var kvikmynduð í myndveri Screen Gems í Ojai í Kaliforníu sem einnig fjármagnaði myndina.

Myndin fjallar um Olive Penderghast sem er ung menntaskólastelpa sem byrjar að segja lygasögur af sjálfri sér og lendir í vandræðum út af því.

Easy A fékk frábæra dóma gagnrýnenda og margir kölluðu myndina bestu táningamyndina síðan Clueless. Emma Stone var tilnefnd til Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn en hún vann ekki. Myndinni gekk vel í kvikmyndahúsum og fékk yfir 80 milljónir Bandaríkjadala í tekjur.

Söguþráður

Olive Penderghast lýgur því að vinkonu sinni, Rhiannon, að hún komist ekki með henni í útileigu um helgina af því að hún ætli að fara á stefnumót með eldri strák. Mánudaginn eftir helgina biður Rhiannon hana um að segja sér frá stefnumótinu og Olive segir henni að hún hafi misst meydóminn með stráknum.

Lygin kvisast út og líf Olive breytist á þann hátt að það fer að líkjast lífi Hester Prynne's í skáldsögunni The Scarlett Letter sem stúlkan er einmitt að lesa í skólanum. Hún ákveður að hagnýta sér umtalið sem þetta hefur í för með sér til að styrkja félagslega og fjárhagslega stöðu sína.

Read next

In 41 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article