Denver Nuggets er körfuknattleikslið frá borginni Denver sem spilar í NBA-deildinni. Liðið var stofnað sem Denver Larks árið 1967 en breytti nafni sínu í Denver Rockets fyrir fyrsta tímabil sitt í ABA-deildinni. Liðið lék til úrslita í ABA á síðasta tímabili deildarinnar en laut í lægra haldi fyrir New York Nets. Við sameiningu ABA og NBA árið 1976 fluttist Nuggets yfir í NBA-deildina.
Árið 2023 komust Nuggets fyrst í úrslit NBA deilarinnar þar sem liðið lagði Miami Heat að velli og vann sinn fyrsta meistaratitil. Bestu leikmenn Nuggets það árið voru Serbinn Nikola Jokić og Kanadamaðurinn Jamal Murray.
Sex leikmenn hafa fengið treyju sýna hengda upp í rjáfur á heimavelli Nuggets en það eru þeir Alex English, Fat Lever, David Thompson, Byron Beck, Dan Issel og Dikembe Mutombo ásamt þjálfaranum Doug Moe. Meðal annarra þekktra leikmanna í sögu liðsins má nefna Carmelo Anthony og Allen Iverson.
Þekktir leikmenn
- Alex English
- Allen Iverson
- Carmelo Anthony
- David Thompson
- Dikeme Mutombo
- Jamal Murray
- Nikola Jokić
Titlar
- ABA
- Tapað í úrslitum (1): 1976
- NBA
- Meistarar (1): 2023
- McDonald's meistaramótið
- Meistarar (1): 1989