factograf
IS
Sign in

höfuðborg Ástralíu

Canberra

Canberra

Key facts

íbúafjöldi381.488
flatarmál472km²
erborg, stórborg
landÁstralía
stofndagsetning12. mars 1913
hæð yfir sjávarmáli578m
All data from the card 9
Land
Ástralía
Fylki
Höfuðborgarsvæði Ástralíu
• Samtals
814,2 km2
Hæð yfir sjávarmáli
578 m
• Samtals
473.855
• Þéttleiki
580/km2
Tímabelti
UTC+10:00
• Sumartími
UTC+11:00
Vefsíða
act.gov.au

Canberra (eða Kanberra á íslensku) er höfuðborg Ástralíu og er á Höfuðborgarsvæði Ástralíu. Nafnið er komið af heiti frumbyggja svæðisins yfir það, og talið þýða staður þar sem fólk kemur saman. Íbúar borgarinnar eru um 473.855 (2024) sem gerir hana 8. stærstu borg Ástralíu og þá stærstu inn til lands.

Saga

Canberra var stofnuð sérstaklega sem höfuðborg fyrir hið nýja samveldi í kjölfar deilna milli tveggja stærstu borganna, Melbourne og Sydney um hvar hið nýja þing skyldi vera staðsett. Staðsetningin var valin árið 1908 sem nokkurn veginn mitt á milli borganna tveggja og þægileg staðsetning til að byggja á, með góðum aðgangi að vatni. Árið 1911 sigraði Bandaríkjamaðurinn Walter Burley Griffin alþjóðlega keppni um skipulag borgarinnar. Það er stöðuvatn í miðri borginni nefnt eftir honum. 1913 var borgin nefnd og byrjað var að byggja hana. Árið 1927 flutti samveldisþingið þangað.

Framan af var Canberra hálfgerður smábær en í dag er Canberra orðin alvöru höfuðborg hvað varðar stjórnsýsluna. Þar eru samveldisþingið, hæstirétturinn, Háskóli Ástralíu (enska: Australian National University) og fleiri mikilvægar stofnanir.

Í Janúar 2003 riðu skógareldar yfir hluta borgarinnar og 491 heimili brunnu til kaldra kola. Einnig eyðilagðist algjörlega stjörnuskoðunarstöðin á Stromlófelli. Þrátt fyrir þetta létust einungis fjórir.

Hverfaskipting

Canberra er skipulögð borg, með einn kjarna og nokkur stór úthverfum, hverju skiptu í mörg smærri hverfi. Flest þessara úthverfa hafa svo eigin kjarna með verslunum og þjónustu og útivistarsvæði, oftast með litlu stöðuvatni. Milli helstu úthverfana eru græn svæði, þar sem náttúran ræður ríkjum og dýr svo sem kengúrur ganga villt.

Aðalúthverfi borgarinnar eru, í stafrófsröð:

  • Belconnen
  • Gungahlin
  • Norður-Canberra
  • Suður-Canberra
  • Tuggeranong
  • Weston Creek
  • Woden Dalur

Norður og suður Canberra eru miðbærinn, sitt hvoru megin við Burley Griffin-vatn. Þar að auki eru bærinn Queanbeyan (í Nýja-Suður-Wales) og þorpið Hall (eitt af mjög fáum sveitarfélögum innan höfuðborgarsvæðisins utan Canberra) hálfgerð úthverfi borgarinnar.

Read next

In 187 languages

isаԥсшәаAcèhадыгабзэAfrikaansAlemannischአማርኛaragonésÆngliscالعربيةالدارجةمصرىasturianuazərbaycancaتۆرکجهбашҡортсаBasa Baližemaitėškaбеларуская (тарашкевіца)беларускаябългарскиभोजपुरीBislamaবাংলাབོད་ཡིགbrezhonegbosanskicatalà閩東語 / Mìng-dĕ̤ng-ngṳ̄нохчийнCebuanoکوردیcorsučeštinaсловѣньскъ / ⰔⰎⰑⰂⰡⰐⰠⰔⰍⰟчӑвашлаCymraegdanskDeutschZazakiΕλληνικάEnglishEsperantoespañoleestieuskaraفارسیsuomiNa Vosa VakavitiføroysktfrançaisarpetanNordfriiskFryskGaeilgeGàidhliggalegoAvañe'ẽHausa客家語 / Hak-kâ-ngîHawaiʻiעבריתहिन्दीFiji HindihrvatskihornjoserbsceKreyòl ayisyenmagyarհայերենԱրեւմտահայերէնBahasa IndonesiaInterlingueIdoitaliano日本語JawaქართულიQaraqalpaqshaTaqbaylitқазақша한국어کٲشُرkurdîkernowekкыргызчаLatinaLadinoLëtzebuergeschLigurelombardlietuviųlatviešuमगहीमैथिलीBasa BanyumasanMalagasyолык марийMāoriMinangkabauмакедонскиമലയാളംмонголꯃꯤꯇꯩ ꯂꯣꯟमराठीBahasa MelayuMaltiမြန်မာဘာသာمازِرونیनेपालीNederlandsnorsk nynorsknorskNovialoccitanlivvinkarjalaиронਪੰਜਾਬੀPapiamentuDeitschpolskiPiemontèisپنجابیپښتوportuguêsRuna Simirumantschromânăрусскийसंस्कृतम्саха тылаᱥᱟᱱᱛᱟᱲᱤsardusicilianuScotsسنڌيdavvisámegiellasrpskohrvatski / српскохрватскиසිංහලSimple EnglishslovenčinaslovenščinaGagana SamoaanarâškielâchiShonaSoomaaligashqipсрпски / srpskiSeeltersksvenskaKiswahiliślůnskiSakizayaதமிழ்తెలుగుtetunтоҷикӣไทยTagalogtolışilea faka-Tongatoki ponaTok PisinTürkçeтатарча / tatarçachiTumbukaTwireo tahitiудмуртئۇيغۇرچە / Uyghurcheукраїнськаاردوoʻzbekcha / ўзбекчаvènetovepsän kel’Tiếng ViệtVolapükWinaray吴语მარგალურიייִדישYorùbáVahcuenghZeêuws文言閩南語 / Bân-lâm-gí粵語中文

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article