Bill Ward (fæddur William Thomas Ward 5. maí árið 1948 í Aston, Birmingham á Englandi) er fyrrum trommari þungarokkssveitarinnar Black Sabbath. Ward söng tvö lög með Sabbath: It's Alright (1976) og Swinging the Chain (1978).
Ward tók þátt í tónleikum árið 2025 þar sem upprunalegu meðlimir Sabbath komu saman í síðasta sinn í heimaborg sinni, Birmingham. Hann hafði ekki spilað með hljómsveitinni í 20 ár áður en að því kom.
Sólóskífur
- Ward One: Along the Way (1990)
- When the Bough Breaks (1997)
- Accountable Beasts (2015)
