factograf
IS

Amintore Fanfani

Amintore Fanfani

Key facts

fæðingardagur6. febrúar 1908
dánardagur20. nóvember 1999
alma materUniversità Cattolica del Sacro Cuore
starfstjórnmálamaður, diplómat, hagfræðingur
fæðingarstaðurPieve Santo Stefano
dánarstaðurRóm
All data from the card 23
Forseti
Francesco Cossiga
Forveri
Bettino Craxi
Eftirmaður
Giovanni Goria
Forseti
Sandro Pertini
Forveri
Giovanni Spadolini
Eftirmaður
Bettino Craxi
Forseti
Giovanni GronchiAntonio Segni
Forveri
Fernando Tambroni
Eftirmaður
Giovanni Leone
Forseti
Giovanni Gronchi
Forveri
Adone Zoli
Eftirmaður
Antonio Segni
Forseti
Luigi Einaudi
Forveri
Giuseppe Pella
Eftirmaður
Mario Scelba
Fæddur
6. febrúar 1908 Pieve Santo Stefano, Toskana, Ítalíu
Látinn
20. nóvember 1999 (91 árs) Róm, Latíum, Ítalíu
Þjóðerni
Ítalskur
Stjórnmálaflokkur
PNF (1935–1943)DC (1943–1994)PPI (1994–1999)
Maki
Biancarosa Provasoli (g. 1939; d. 1968) Maria Pia Tavazzani (g. 1975)
Börn
7
Háskóli
Università Cattolica del Sacro Cuore
Starf
Stjórnmálamaðurhagfrlðingur

Amintore Fanfani (6. febrúar 1908 – 20. nóvember 1999) var ítalskur stjórnmálamaður, félagi í kristilega demókrataflokknum og forsætisráðherra Ítalíu í sex ríkisstjórnum frá 1954 til 1987.

Fanfani var menntaður í hagsögu og var fylgismaður fasismans á Ítalíu og ritaði meðal annars greinar í tímaritið Difesa della Razza, málgagn kynþáttahyggjunnar á Ítalíu. Hann tók að breyta um skoðun (líkt og fleiri) eftir 1943. Eftir að Mussolini sagði af sér 24. júlí 1943 flúði hann til Sviss þar sem hann hélt sig þar til eftir frelsun Ítalíu.

Hann gerðist síðan félagi í kristilega demókrataflokknum og tók þátt í samningu stjórnarskrárinnar 1946. Hann er meðal annars höfundur einnar af grundvallarsetningum stjórnarskrárinnar, „Ítalía er lýðveldi sem grundvallast á vinnu“ („L'Italia è una Repubblica fondata sul lavoro“).

Hann varð fyrst ráðherra í fjórðu ríkisstjórn De Gasperis. 1954 myndar hann sína fyrstu ríkisstjórn, en tekst ekki að tryggja henni þingmeirihluta sem verður til þess að hún fellur eftir aðeins mánuð. Sama ár verður hann aðalritari kristilega demókrataflokksins. 1962 myndar hann sína fjórðu ríkisstjórn með stuðningi sósíalista, sem verður sú fyrsta í langri röð vinstri-miðjustjórna í sögu Ítalíu. Hann var forseti öldungadeildarinnar 1968 til 1973 og 1976 til 1982 og ráðherra í ýmsum ríkisstjórnum allt til ársins 1987.

Eftir Mani pulite og endalok kristilegra demókrata, gerðist hann félagi í hinum nýja Partito Popolare Italiano sem varð til úr leifum demókrataflokksins.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Giuseppe Pella Eftirmaður:
Mario Scelba Fyrirrennari:
Adone Zoli Eftirmaður:
Antonio Segni Fyrirrennari:
Fernando Tambroni Eftirmaður:
Giovanni Leone Fyrirrennari:
Giovanni Spadolini Eftirmaður:
Bettino Craxi Fyrirrennari:
Bettino Craxi Eftirmaður:
Giovanni Goria


Read next

In 51 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article