factograf
IS

Aberdeen FC

All data from the card 8
Gælunafn/nöfn
The DonsThe DandiesThe Reds
Stofnað
1903
Leikvöllur
Pittodrie StadiumAberdeen
Stærð
20.866
Stjórnarformaður
Dave Cormack
Knattspyrnustjóri
Jimmy Thelin
Deild
Skoska úrvalsdeildin
2025-2026
9. sæti

Aberdeen FC er knattspyrnufélag frá Aberdeen, sem leikur í efstu deild í Skotlandi. Félagið var stofnað árið 1903 og hefur leikið samfleytt í efstu deild frá 1905, lengur en nokkuð annað lið að Celtic frátöldu. Félagið hefur fjórum sinnum orðið Skotlandsmeistari, átta sinnum bikarmeistari (síðast 2025) og sjö sinnum deildarbikarmeistari. Árið 1983 varð Aberdeen Evrópumeistari bikarhafa undir stjórn Alex Ferguson.

Búningur og félagsmerki

Hátíðarveifa Aberdeen F.C. frá árinu 1980.
Hátíðarveifa Aberdeen F.C. frá árinu 1980.

Fyrsta starfsár Aberdeen F.C. lék liðið í hvítum treyjum og bláum stuttbuxum. Þegar á árinu 1904 var hvíta búningnum skipt út fyrir gul- og svartröndóttar treyjur, í fyrstu við bláar stuttbuxur en síðar hvítar. Fyrir vikið gengu liðsmenn Aberdeen undir gælunafninu Geitungarnir. Árið 1939 var rauður tekinn upp sem einkennislitur Aberdeen til samræmis við merki borgarinnar. Framan af voru leikmenn í hvítum stuttbuxum en frá því á vormánuðum 1966 var búningurinn alrauður.

Fyrstu sjö áratugina af sögu sinni var Aberdeen ekki með eiginlegt félagsmerki, þó búningar bæru stundum skammstöfunina AFC. Árið 1972 var núverandi merki kynnt til sögunnar. Það sýnir mynd af knattspyrnumarki frá hlið, sem myndar ásamt risastórum bolta bókstafinn A. Frá árinu 2005 hafa tvær stjörnur prýtt keppnistreyjuna fyrir ofan merkið, til minningar um tvo Evróputitla félagsins á níunda áratugnum.

Heimavöllur

Pittoride Stadium hefur verið heimavöllur Aberdeen frá stofnun félagsins árið 1903. Hann var upphaflega reistur fyrir knattspyrnufélag með sama nafni árið 1899. Í dag er Pittoride fjórði stærsti völlurinn í Skotlandi og tekur í dag 20.866 áhorfendur. Mesti áhorfendafjöldi í sögu vallarins er þó 45.061 á bikarleik gegn Hearts árið 1954.

Áform um byggingu nýs heimavallar fyrir Aberdeen hafa lengi verið til umræðu, þar sem illmögulegt er talið að byggja við núverandi völl. Ýmsar staðsetningar hafa verið nefndar í þessu sambandi en eiginlegar framkvæmdir eru þó ekki hafnar.

Titlar

  • Úrvalsdeild (4): 1954–55, 1979–80, 1983–84, 1984–85
  • Skoski bikarinn (8): 1946–47, 1969–70, 1981–82, 1982–83, 1983–84, 1985–86, 1989–90, 2024–25
  • Skoski deildarbikarinn (6): 1955–56, 1976–77, 1985–86, 1989–90, 1995-96, 2013-14
  • Evrópukeppni bikarhafa (1): 1982-83
  • Evrópski meistarabikarinn (1): 1983

Tilvísanir og heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Aberdeen F.C.“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. júní 2025.

In 61 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article