Árið 1511 (MDXI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- Englendingar tóku Hamborgarskip við Ísland og fóru með það og áhöfn þess til Hull.
- Grímur Pálsson sýslumaður þurfti að fara frá Möðruvöllum eftir konungsúrskurð, svonefnda Möðruvallaréttarbót. Hann fékk jörðina þó aftur seinna.
Fædd
- (líklega) - Þórunn Jónsdóttir, húsfreyja á Grund (d. 1593).
Dáin
- Halldór Ormsson, ábóti í Helgafellsklaustri (eða 1512).
Erlendis
- 19. janúar - Ítalíustríðin: Umsátrið við Mirandola. Páfaríkin ásamt Feneyingum og Spánverjum náðu á valdi sínu svæði á norður-Ítalíu og hrundu sókn Frakka.
- 27. febrúar - Óánægðir íbúar Fríúlí gerðu uppreisn gegn valdi Feneyinga og réðust á borgina Udine þar sem þeir myrtu aðalsfólk.
- 11. mars - Spænski landvinningarmaðurinn Juan Ponce de León hóf innreið í Púertó Ríkó og gegn frumbyggjum þar.
- 26. mars - Jarðskjálfti við Ítalíu og Slóveníu varð meira en 10.000 að bana.
- 13. maí - Frakkar náðu Bologna á sitt vald eftir tveggja daga bardaga.
- 15. ágúst - Portúgalir náðu á vald sitt Malakka, höfuðstað soldánsveldisins Malakka (í núverandi Malasíu), þ.e. landvinningamaðurinn Afonso de Albuquerque. Þar með náðu þeira valdi yfir Malakkaskaga og Malakkasundi.
- 4. október - Ítalíustríðin: Bandalag Páfaríkjanna, Lýðveldisins Feneyja, Konungsdæmisins Aragóníu gegn áhrifasvæði Frakka á Ítalíu, var myndað.
- 17. nóvember - Hinrik 8. og Ferdinand 2. af Aragóníu mynduðu bandalag gegn Frakklandi.
- Diego Velázquez de Cuéllar og Hernán Cortés lögðu Kúbu undir Spán.
- Fyrstu svörtu þrælarnir voru fluttir til Kólumbíu.
- Erasmus frá Rotterdam gaf út Lof heimskunnar.
- Portúgalir fóru fyrstir Evrópubúa til Búrma og Síams.
Fædd
- 3. júlí - Giorgio Vasari, ítalskur listmálari, arkitekt og rithöfundur (d. 1574).
- 9. júlí - Dórótea af Saxlandi-Láinborg, Danadrottning, kona Kristjáns 3. (d. 1571).
- 29. september - Miguel Serveto, spænskur læknir og guðfræðingur (d. 1553).
Dáin
- 31. desember - Svante Nilsson, ríkisstjóri Svíþjóðar frá 1504 (ýmist talinn hafa dáið þennan dag eða 2. janúar 1512).
