
Árið 1361 (MCCCLXI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- Smiður Andrésson kom til landsins með hirðstjórn.
- 17. júní - Ívar Vigfússon hólmur kom til landsins til að safna páfatekjum.
- 18. júní - Smiður Andrésson hirðstjóri lét taka Árna Þórðarson, fyrrverandi hirðstjóra, af lífi í Lambey í Fljótshlíð vegna aftöku Markúsar barkaðar og fjölskyldu hans á sama stað 1360.
- Jón Guttormsson skráveifa varð lögmaður sunnan og austan.
- Prestar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu neituðu að beygja sig undir Jón skalla Eiríksson Hólabiskup en hann bannfærði þá.
- Ólafssúðin, sögð stærsta skip sem til Íslands hafði komið, fórst í hafi á leið til Noregs og með því Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup, sem hafði bjargast naumlega úr skipstapa árið áður, og nærri áttatíu menn aðrir.
- Einokunarverslun fyrri komið á þar sem kaupmenn frá Björgvin fengu einkaleyfi til verslunar í öllu ríki Noregskonungs.
Fædd
Dáin
- 14. mars - Eysteinn Ásgrímsson munkur, höfundur Lilju.
- 18. júní - Árni Þórðarson hirðstjóri (f. 1315).
- 13. október - Arngrímur Brandsson, skáld og ábóti í Þingeyraklaustri.
- Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup.
- Jórunn Hauksdóttir, abbadís í Kirkjubæjarklaustri.
Erlendis
- 16. febrúar - Soldáninn af Granada gerði vopnahléssamning við Pétur konung Aragóníu.
- 17. mars - Soldán Mamlúka í Egyptalandi var myrtur af eigin mönnum.
- 24. júní - Svartadauðafaraldur fór um London og létust 1.200 manns á 2 dögum.
- 27. júlí - Valdimar atterdag lagði Gotland undir sig og drap 1.200 í orrustu um Visby.
- 3. ágúst - Jarðskjálfti varð í Japan á hafi, hugsanlega 8,4 að stærð, sem olli flóðbylgju og ruddi 1.700 húsum og þúsundum manna.
- 23. ágúst - Pétur 1., konungur Kýpur réðst á borgina Antalyia þar sem nú er Tyrkland og rændi hana og ruplaði.
- 10. október - Svarti prinsinn giftist Jóhönnu, meynni fögru af Kent.
- 11. nóvember - Kínverska Júanveldið réðst inn í Kóreu.
- 21. desember - Her Kastilíu vann sigur á Márum nálægt þar sem Jaén-hérað er í dag.
- Borgin Buda varð höfuðborg Ungverjalands.
- Borgin Danzig gekk í Hansasambandið.
Fædd
- 26. febrúar - Venseslás 4., konungur Bæheims (d. 1419).
Dáin
- 9. júní - Philippe de Vitry, franskt tónskáld (f. 1291).
- 7. júní - Ingibjörg Hákonardóttir, drottning Svíþjóðar og ríkisstjóri Noregs og Svíþjóðar (f. 1301).
- 18. september - Lúðvík 5., hertogi af Bæjaralandi (f. 1315).
- 21. nóvember - Filippus 1., hertogi af Búrgund, dó úr plágunni (f. 1346).
