factograf
IS

kvikmynd frá 1979 eftir Francis Ford Coppola

Dómsdagur nú

Dómsdagur nú

Key facts

útgáfudagur10. maí 1979
erkvikmynd
leikstjóriFrancis Ford Coppola
All data from the card 14
Leikstjóri
Francis Ford Coppola
Handritshöfundur
John Milius Francis Ford Coppola
Byggt á
Innstu myrkur eftir Joseph Conrad
Framleiðandi
Francis Ford Coppola
Leikarar
Marlon BrandoRobert DuvallMartin SheenFrederic ForrestAlbert HallSam BottomsLarry FishburneDennis Hopper
Kvikmyndagerð
Vittorio Storaro
Tónlist
Carmine CoppolaFrancis Coppola
Frumsýning
15. ágúst, 1979
Lengd
153 mín.
Land
Bandaríkin
Tungumál
Enska
Aldurstakmark
R 16
Ráðstöfunarfé
$31.500.000
Heildartekjur
$150 milljónir

Dómsdagur nú (enska: Apocalypse Now) er kvikmynd frá árinu 1979 í leikstjórn Francis Ford Coppola. Myndin, sem var lauslega byggð á skáldsögu Josephs Conrad, Innstu myrkur (e. Heart of Darkness), gerist í Víetnamstríðinu og segir frá leiðangri Benjamin L. Willard höfuðsmanns í bandaríska hernum í leit að Walter E. Kurtz ofursta. Til að komast að Kurtz þarf Willard að ferðast upp með ánni Nung inn í frumskóga Kambódíu. Þar hefur Kurtz tekið sér stöðu leiðtoga meðal íbúa og hegðar sér, samkvæmt lýsingum sem Willard fær á fundi áður en haldið er af stað, á ómannúðlegan hátt. Hlutverk Willards var leikið af Martin Sheen og Marlon Brando lék Kurtz ofursta. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Robert Duvall, Dennis Hopper og Laurence Fishburne.

Francis Ford Coppola hóf vinnu á myndinni þegar hann hafði lokið við að leikstýra hluta 2 af myndunum um Guðföðurinn. Upptaka fór fram á Filippseyjum og átti fyrst um sinn að taka 6 vikur. Framleiðslan dróst hins vegar mjög á langinn og urðu þessar 6 vikur að lokum að 16 mánuðum. Átti Coppola þá, sem fjármagnaði myndina að öllu leyti með eigin fé, á hættu að verða gjaldþrota gengi myndin ekki vel í kvikmyndahúsum. Gerð myndarinnar tók mikið á Coppola, jafnt andlega sem líkamlega. Hann missti um 50 kíló og hótaði hann nokkrum sinnum að fyrirfara sér. Árið 1991 kom út heimildarmynd um gerð Dómsdagur nú sem kallaðist Hearts of Darkness: A Filmmaker's Apocalypse.

Dómsdagur nú var tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, meðal annars fyrir bestu mynd og besta leikstjóra, og hlaut tvenn, fyrir bestu kvikmyndatöku og besta hljóð.

Read next

In 67 languages

Text from Wikipedia, CC BY-SA 4.0 · Source article